Ég hef áhuggjur af íslenskri tungu
Ég gekk fram á ungmenni um daginn sem því miður hafði ekki úr á erminni. Drengurinn spurði mig hvort að ég vissi hvað klukkan væri margt, en í stað þess að spyrja fallega, skyrpti hann út úr sér. "Hva er klukkan?". Að sjálfsögðu leiðrétti drenginn og sagði: "Maður segir nú: Veistu hvað klukkan er orðin margt?". Hann svaraði að bragði: "Mér langar nú ekkert að tala eins og þú".
Í fyrsta lagi var þetta nú alveg óttalegur dónaskapur, og í öðru lagi heitir það "mig langar". Ungmenni Íslands kunna ekki lengur að tala rétt mál. Þess vegna skora ég á foreldra og forráðamenn barna að aðal börn sín upp í umhverfi þar sem rétt mál er talað.