Ég rakst á besta ljóskubrandara í heimi í gær.
Þið getið séð hann hér.
Njótið heil og gleðilegt ár. [tekur upp kampavínið og byrjar snemma]
[springur úr hlátri] Ég sem hélt að ég væri búin að heyra þá alla! Snilld Steinríkur!!
Ég hlýt að vera ljóska - fór á alla vega þrjátíu linka - og fann engan brandara!
Æi, vitið þið, mér finnst svona lagað ekkert fyndið. Að senda fólk á einhverja endalausa linkaleit er gamall, lélegur brandari. Ég útnefni þetta félaxrit lélegasta brandara ársins. [Púar á Steinrík]
[Leggst á gólfið og grípur um kvið sér, emjandi af hlátri] Andskotans fífl er maður...
Jóakim - ertu sár yfir því að ég hafi rétt ykkur stafræna útgáfu af miða sem sem á stendur "Það er brandari á hinni hliðinni" á báðum hliðum (þ.e. öllum síðunum) eða ertu sár yfir því að það tók þig svona langan tíma að fatta það?
Ég er ekki sár. Það tók mig auk heldur ekki langan tíma að fatta ,,brandarann". Mér finnst þetta einfaldlega ekkert fyndið...