Skabbi kann ekki að binda hnútana rétt
Ég hef oft orðið fyrir morðárásum af hálfu Baggalúta og þá sérstaklega Skabba, og þá hefur hann verið ölvaður. Bara ef ég fengi einhverja samkeppni hérna...
Hér er við hæfi að ég stofni lítinn laumuþráð.
Er það fyrst og fremst fyrir tiltil ritsins sem það er vel við hæfi.
Sá gestapói sem fyrstur finnur og ritar hér á eftir mér má gjarnan senda mér einkapóst til sönnunar afreksins.
Svo spurningin verður... hve lengi veit enginn af mér hér? Verður það 1 klukkustund, einn dagur, ein vika eða einn mánuður? Eða verður það lengur?
Ef þú sem fyrstur finnur þráð þennan lofar að segja engum frá, lofa ég að gera ekki morðtilraun á þér.
Fundinn!! Eftir einn dag.
En ég ætla ekki að segja þér frá því. Heldur ætla ég að athuga hversu langan tíma það tekur þig að komast að þessu. [Hristist]
9 daga Gvendur, 9 daga. Satt best að segja steingleymdi ég hvar ég lagði þennan þráð frá mér, og í raun tilviljun að ég skyldi kíkja við. Svona nánst því tilviljun. [Starir blaðrandi út í loftið]
[Kemur með nokkra ritla]
Hér er MS Word, TextPad, Notepad, Wordpad og EditPlus.
Þessi þráður er það skemmtilegur að við hæfi er að skilja eftir fingraför hjer. Skál !
Ekki nema furða að þú hafir orðið nokkrum sinnum fyrir morðtilraunum kallinn!
Ég lýsi hér með yfir áhuga á að efna til samstarfs við Albin á sviði launmorða og hvers kyns verka sem Albin teldi viðeigandi , ef að samstarf er samþykkt , og við Blóðugt á sviði alls sem tengist hernaði og hernaðarbrölti.
Ef ekki verður af samþykkt - óska ég engu að síður báðum góðs gengis og megi gæfan fylgja ykkur öllum.