Umsögn um hvað? Ég kem af fjöllum.
Aaahh efni. Ég skil, ég skil. Þetta eru stórmerkilegar breytingar.
[Dansar] Maður þarf nú einhversstaðar að æfa sig, svona hættiði að glápa - hafiði aldrei séð kúasmala steppa áður eða hvað?
Skál ! [Ljómar upp]. Laumupúkaafdrepin eru orðin ótrúlega mörg og fleiri en margan grunar [Starir þegjandi út í loftið].
Skál Vladimir! Skál Mosa! Skál Don! Skál Ívar! Skál Skabbi! Skál Texi! Skál Furða! Skál Hakuchi! Skál Enter! Skál Smábaggi! Skál Hóras! Skál Ég Sjálfur! Skál Júlíus! Skál Tigra!
Mátti til með að kíkja við í smá laumuferð... Skál!
Æjæjæ... verð að þjóta, verðirnir eru að koma... Adios
Ég gæti sagt þér það en þá þyrfti ég að ... vita það. [Brestur í óstöðvandi skráp]
230 er merkileg tala og hefur talsverða þýðingu fyrir laumupúka Gestapó
Mér finnst þessu geigvænlega félagsriti ekki sýnd tilhlýðileg virðing með þessari laumupúkastarfsemi.
Hvurnig getur einhver verið fæddur 1. janúar 1970. Var Gestapó til þá? Þetta er svo dularfullt.
[Finnur dularfullan hroll fara um sig alla]
Svo þú varst að laumast í dag Carrie mín, ekki skrítið hvað það fór lítið fyrir þér frammi í almenningnum.
Talandi um 230, þá sló ég inn hitt og þetta í slóð og fékk upp félagsrit.
Titill:
Fjörið
Umsögn:
En fínt!
Efni:
Eitt og annað t.d. smjör og tækifæri
Ég fann þó ekki leið til að leggja orð í belg. Né heldur sjá orðabelgi annarra.
[Dæsir mæðulega]
Enginn komið við hér í dag?
[Undrast]
Eins og það hefur nú verið laumast í dag.
Víst erum vjer hjer. Og svo sannarlega hefur verið laumupúkast sl. sólarhring [Ljómar upp].
Líklega ætti að gera 9. mars að alþjóðadegi laumupúka.
Ég tek undir að 9. mars verði gerður að alþjóðadegi laumupúka. [Skálar fyrir því]
Forsetaembættið stakk upp á þessu svo varla þarf samþykki og staðfestingu frá því.
Samt vissara að blanda eins og einn kóbaltsbláan drykk fyrir forsetann
Forsetaembættið sagði "líklega ætti....". Ég er viss um að forsetaembættið vil tilkynna þetta óopinberlega eða opinberlega.
[Klappar Billa á kollinn, varar sig á örinni samt]
Ég nefndi rafmælið þitt í laumulegri vísu.
9. mars er hjer með alþjóðlegur laumupúkadagur. Líklega tilkynnum vjer fljótlega um hátíðahöld í tilefni þess þar eð eigi var formlega gengið frá þessu fyrr en umræddur dagur var liðinn og langt er í þann næsta.
Á öðrum laumupúkaþræði er það útskýrt lítillega, minnir mig að meðal annars sé sagt að það merkileg tala í augum Bagglýtinga.
230 ku vera greindarvísitala Enters - það er þó deilt um í hvaða talnakerfi hún er.
Nei nei alls ekki, vinn langt yfir 8 tíma aðra daga og hætti svo 2:30 suma.
[Ljómar upp]
Eitthvað um það leitið. Þá hófst nýöld Baggalúts. Sum okkar vorum virk á fornöld. Það voru góðir dagar, en frumstæðir.
Hér er búfénaður á beit og það er ekki geit. Jidúddamía, mikið get ég verið ófyndin stundum.
Hvernig gat Hakuchi skrifað félagsrit árið '69? Er það 1969 eða 2069 eða eitthvað-allt-annað-69?
Af hverju, hvers vegna, akkuru var mér ekki sagt frá þessum alþjóðlega laumupúkadegi?! Ef ég væri páfinn þá myndi ég bannfæra ykkur öll!
Hjer höfum vjer eigi laumupúkast síðan snemma á síðasta ári. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Svo sem Álfelgur var fyrst í fyrra, þá erum vér fyrstir á þessum laumupokaþræði í ár.
Laumupokun er sú iðja, að leggja orð í belg á fáförnum slóðum, en láta engan vita, nema kannse örfáa erkilaumupúka.
Gleðilegan laumupúkadag.