— GESTAPÓ —
RegnHundur
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Sálmur - 1/11/03
Á Sprengjusandi

Úr sýningu Stúdentaleikhússins „þú veist hvernig þetta er“ sem sýnd er í nóvember (2004).

Drepum, drepum, dreifum þeim í sandinn,
djöflablóðið rennur út í höf.
Því á reiki' er hryðjuverkavandinn,
veltum þeim í stóra fjöldagröf.
Drottinn leiðir dómsstólinn minn,
drepinn verður síðasti heiðinginn.

Þei, þei! Þei, þei! Þarna liggja krakkar,
þrútin öll, úr munni vætlar blóð.
Gott er það, því greyin voru rakkar,
glasabörn úr dauðadæmdri þjóð.
Hryðjuverkamenn við Ódáðahraun,
hafa kannski efnavopn á laun.

Drepum, drepum, dreifum þeim í sandinn,
dauða sendum yfir Herðubreið.
Svarta konan er að brýna brandinn,
biðjum þess að verða á hennar leið.
Skýra hugsun skal ég gefa til
að skjóta Araba við Kiðagil.

   (1 af 2)  
1/11/03 10:01

krumpa

Drullugott !

1/11/03 10:01

Ljón Vitringanna

Helvíti nett hjá kellinum

1/11/03 10:01

Limbri

Ert þú höfundurinn ?

-

1/11/03 10:01

Skoffín

Góð vísa þó ljót sé.

10/12/07 06:01

Geimveran

[Laumast]

RegnHundur:
  • Fæðing hér: 20/11/03 07:10
  • Síðast á ferli: 10/6/05 20:03
  • Innlegg: 0
Eðli:
Ég er alveg ágætis náungi
Fræðasvið:
Íslenskt fræðasvið með hliðaráhuga í heimspekilegum fræðum.
Æviágrip:
Ég fæddist. Nokkru síðar skráði ég mig inn á Baggalút.is