Hef ég Nykur ákveðið að endurútgefa, nú nánast ófáanlega og hafið yfir alla gagnrýni félagsrit vort og tímamótaverk, ÁSTIR OG RAUNIR FORSÆTISRÁÐHERRANS Á NYKURVÖLLUM.
Ástir og raunir forsætisráðherrans á Nikurvöllum
Leikstjóri: Nikur
Aðalleikari: Nikur
Áhættuleikari fyrir Nikur: Mikill Hákon
Nikur-stelpur: Nikur
Áhættuleikari fyrir Nikur stelpur: Mikill Hákon
Framleiðandi Nikur/Kvikmindaakademía Baggalútíu
Þess má geta að tökur á Stórmindinni Ástir og raunir forsætisráðherrans á Nikurvöllum hófust í gær í og firir utan ráðherrabústaðinn Heiðmörk. Eftirfarandi er brot úr þessu ótrúlega dramatíska og dapurlega en jafnfram æsispennandi atriði.
[ Leia prinsessa hleipur niður stigann af tröppupallinum í áttina að hliðinu að ráðherrabústaðnum Heiðmörk. ]
Leia Prinsessa: Nikur bíddu eftir mér, bíddu eftir mér! Nikur!
[ Leia Prinsessa kemur hlaupandi í gegnum þokuna í átt að ráðherrabústaðnum. ]
Leia prinsessa: Nikur!
[ Leia prinsessa, móð og rjóð í kinnum, með tárin í augunum. ]
Leia prinsessa: Nikur!
[ Nikur snýr höfðinu og horfir á hana. Hún gengur í átt til hans. Útidyrahurðin er opin ]
Leia prinsessa: Nikur.
Nikur: Kom inn.
Leia Prinsessa: Nikur...
Nikur: Sirrí - hún er... [ (Leia prinsessa kinkar kolli) ] jæja...guð blessi hana. Hún er eina algóða manneskjan sem ég hef þekkt. Fín kona. Mjög svo fín kona. Svo hún er látin. Það kemur sér vel fyrir þig, er það ekki?
Leia prinsessa: Ó, hvernig getur þú látið svona útúr þér! Þú veist að mér þótti vænt um hana, í alvöru!
Nikur: Nei ég var grunlaus um það. En það reiknast þér þó til tekna, að þú kunnir að meta hana undir lokin.
Leia prinsessa: Auðvitað kunni ég að meta hana. Hún gaf sig að öllum nema sjálfri sér. Hennar síðustu orð voru um þig.
Nikur: Hvað sagði hún?
Leia prinsessa: Hún sagði vertu góð við Nikurinn, hann elskar þig svo heitt.
Nikur: Sagði hún eitthvað annað?
Leia prinsessa: Jú hún gerði það, hún sagði mér að skila því til þín að þér Nikur væruð fallegasti, gáfaðasti og jafnframt herðabreiðasti elskhugi sem hún hefði átt.
Nikur: Já mig grunaði það.
Leia prinsessa: Ég veit aðeins að ég elska bara þig.
Nikur: Það eru þín óheilindi.
[ Leia prinsessa stendur í andirinu og horfir upp stigann. Nikur gengur upp stigann. Leia prinsessa horfir á hann grátandi. ]
Leia prinsessa: Ó, Nikur.
[ Leia prinsessa, ennþá grátandi. ]
Leia prinsessa: Nikur!
[ Leia prinsessa: hleypur upp stigann. ]
Leia prinsessa: Nikur! Nikur!
[ Leia prinsessa kemur á æðandi siglingu inn í koníaksstofu ráðherrabústaðsins Heiðmörk, allir veggir eru viðarklæddir á sérlega smekklegan hátt og Cesterfield sófinn er mjög glæsilegur svona á miðju gólfinu. ]
Leia prinsessa: Nikur! Ef þú ferð, hvert skal ég fara? Hvað skal ég gjöra?
Nikur: Í hreinskilni, mín kæra, þá gef ég dauðann og djöfulinn í það.
[ Nikur fer út á svalir kveikir sér í cohiba vindli. Stekkur svo fram af svölunum sem eru á fjórðu hæð eins og ekkert sé og hverfur í þokuna. (áhættuatriði Mikill Hákon) ]
Þess má geta að allt atriðið var tekið upp í Teknókolor og skrifað er ég þjáðist að kvilla einum sem kenndur er við Dr. Zoiderg sem gerði mér illmögulegt að nota ypsilón, til allra hamingju er ég alveg komin ifir þetta í dag.
Humm. athyglisvert atriði, hugsa að ég geti tekið þetta uðð eftir að ég er búinn að klára myndinna.
Það þarf að semja fleiri handrit að ódauðlegum stórmyndum hjer á Gestapó [Ljómar upp]. Þetta vekur sannarlega upp skemmtilegar minningar frá árdögum Baggalútíu.