Undir bölvunarhætti
Að pakka niður (eigi dún og fiður), fjandinn!
finnst mér ekki æði
Úr landi brott (eigi er það gott), gvööööð!
gef mér þolinmæði.
Þessi vísa varð til meðan Mosa stóð umkringd pappakössum og kaósi, bölvandi eins og sjómaður, og skyndilega fannst henni öll blótsyrðin ríma. Nefnist þessi bragaháttur bölvunarháttur.