Nú þegar það er boðið uppá þessa dagbókarþjónustu er um að gera að nýta sér hana.
Dag hófst vetrarfrí í Verzlunarskóla Íslands, en þar sem ég er vinarlaus þá hef ég ekkert betra að gera en að sitja hérna á mínum óæðri enda við að telja kindur og horfa á endursýningar á kanadískum sjónvarpsmyndum.
Annars þá er þetta fínt, öngvar akademískar áhyggjur svo langt sem augað eygir og móðir mín lætur mig í friði aldrei þessu vant.
Kannski að maður fari í öldrykkjuveislu þegar líða tekur á kvöldið.
Jæja, farinn að borða skyr.
Hér hefir enginn laumupokast í rúm fimm ár. Það teljum vér þarfaþing að hefjast handa. Þó munum vér fjarlægja laumun vora hið snarasta, krefjist Rauðbjörn þess.