Loksins, alvöru veður, fyrir alvöru karlmenn.
Þurfti að setja í driflæsingarnar og gat spólað talsvert. Átti erindi yfir fjallveg í gær í afleitu skyggni, sást aldrei á milli stika. Svona ferðir koma geðinu sannarlega í lag.
Mætti líka stórskemmtilegri og týpískri sjón í skafrenningnum. Vörubíll með tengivagn þversum, rauðþrútinn, berhentur bílstjórinn að keðja, bograndi með skoruna ca 55% uppúr gallabuxunum (bert á milli). Ef svona kemur manni ekki í gott skap þá er stutt í sjálfsmorðsþankana.
JESS!!
Vaða snjó upp í klof og spóla snjó yfir aðra bíla sem eru fastir...
Já, laufin eru að byrja að falla hér hjá mér. Hitastigið fór meira að segja undir 14°c í dag.
Veturinn er að koma.
-
Ah... Danmark á veturnar, skítakuldi, raki og veðurleysi, those where the days... Má ég þá heldur biðja um él, rok og snjóskafla.