— GESTAPÓ —
Bjargmundur frá Keppum
Óbreyttur gestur.
Dagbók - 4/12/03
Ofsóknarbrjálæði

Alveg er nú makalaust hversu langt stjórnarandstaðan er tilbúin að fara í dylgjum og málflutningi sínum um eitthvað sem gæti "hugsanlega" verið aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Ég meina, jafn daglegur hlutur og sprenging í kaffibolla, eða hvað sem það nú var, er allt í einu orðið slæmur hlutur og þessvegna "ríkisstjórninni að kenna". Jahérna.

Síðan svara tveir stjórnarmenn þeim með kaldhæðnislegum út-í-hött svörum (ég er alltaf að segja þeim að hætta að grínast svona í smámennum) og þá er allt komið í háaloft!
Alltíeinu erum við farnir að hlera þá eins og einhverjir nasistar (ég heyrði andspyrnumann segja þetta!) og reyna að drepa þá. Þvílíkur þvættingur!

   (19 af 22)  
Bjargmundur frá Keppum:
  • Fæðing hér: 10/10/03 17:12
  • Síðast á ferli: 9/3/11 02:16
  • Innlegg: 53
Eðli:
Í Heimsveldinu Baggalútíu ríkir stórriddarinn Sir Bjargmundur KBE (Knight of the Baggalutian Empire) yfir nefndarmálum, auk þess sem hann sinnir utanríkismálum í hjáverkum. Hann má oftast finna í hinum gríðarstóra kastala sem hýsir nefndarmálaráðuneytið, þar sem hann stundar hvort tveggja að stjórna gangverki samfélagsins með óteljandi nefndum og að borða kleinur og drekka kaffi á tilgangslausum nefndarfundum til að auka himinhá eftirlaun sín enn frekar.Þó svo að minna beri á ráðherranum dags-daglega á opinberum vettvangi heldur en Konungshjónum, Keisara, Forseta eða Forsætisráðherra Baggalútíu, er það í rauninni hann sem stjórnar á bak við tjöldin með krafti nefnda og skriffinnsku, en með því að styrkja stoðir skrifræðis í Heimsveldinu Baggalútíu hefur ráðherrann komið ár sinni þannig fyrir borð að hann getur talist einn valdamesti maður Ríkisins, þar eð ekkert getur farið fram nema að nefndir og skriffinnska komi þar að. Þess á milli er ráðherrann mikið fyrir sopann og á það til að dansa á borðum uppi við gamla diskóslagara, auk þess sem aðaltómstundagaman hans er að reykja vindla og hlæja stórkarlalega.
Fræðasvið:
Alhliða spekúlasjónir, bjúrókratismi og nefndarsköp.
Æviágrip:
-Bjargmundur Svarfdal fæddist á bænum Keppum við Dýrafjörð. Hann kemur af langri röð embættismanna, skriffinna og ógæfumanna.-Skráður í Skálholtsskóla einungis þriggja vetra gamall. Útskrifaður með 6,5 í leikfimi/glímu, 10 í bókfærslu, 8 í latínu og 7 í mótekju.-Hefur átt marga lærifeður og samstarfsmenn í gegnum tíðina, en þar á meðal eru Guðbrandur biskup, Magnús Stephensen, Bólu-Hjálmar, Herbert Spencer, Max Weber o.fl.