Fór að horfa á trúboða mína og fannst mér gaman.
Fór á Metallica og sé sko ekki eftir því. Trúboðar mínir stóðu sig með prýði og djöfulgangur þeirra var með eindæmum góður. Gamlir sálmar eins og "Master of puppets" og "Enter Sandman" dundu yfir lærlingum mínum og börnum. Einstaklega orkuríkt og í senn tæmandi. Sæluvíma og þakklæti í minn garð voru óaðfinnaleg. Nokkur börn úr mínum söfnuði fóru offorsa og fann ég mikið fyrir þeirra kröftum á meðan að þau höfðu þá. Vil ég pósta þakklæti til þeirra fyrir að taka þátt og gefa mér alla sína orku.
Tónleikarnir voru Frábærir og það eina sem vantaði var stór brunaslanga til að sprauta yfir liðið.
Ein mesta upplifun lífs míns og vorkenni ég öllum þeim sem misstu af þeim.