— GESTAPÓ —
Frelsishetjan
Fastagestur og  skriffinnur.
Dagbók - 1/11/03
Af því að Baggalútur er svo magnaður

Ætla ég að bera fram ósk.

Ég vil biðja Baggalút um að koma því á framfæri við fyrirtækið sem ég vinn hjá. Að gefa mér umfangsmikla kauphækkun.
Því ég hef tekið eftir því upp á síðkastið að það sem að ég fæ í laun finnst mér ekki nægjanlegt lengur. Eftir að ég keypti mér þessa þrjá bíla og tvö einbýlishús sá ég að það lítið var eftir af launaseðlinum að ég gat ómögulega keypt mér annan bíl.

Hvernig á maður að fara að því að eltast við þennan velmegunarleik ef að launaseðill mánaðarins rétt nægir til að kaupa þrjá bíla og tvö einbýlishús. Þetta er gjörsamlega ófullnægjandi. Það er engu líkara en að ég sé nú orðinn láglaunamaður. Hef ekki efni á meira dóti. Get ekki keypt mér innbúið í þessi einbýlishús...

Það er orðið sárt að horfa á launaumslag sitt. Ég sé ekki fram á það að ég geti staðið í þessari velmegunarkeppni mikið lengur þar sem að fleira og fleira fólk fær sér fleiri og dýrari bíla. Nei nú er bilið að verða of mikið.

Mér finnst að launaumslagið ætti að hækka sjálfkrafa eftir því sem verð á íbúðum og bílum hækkar.

Látið yfirmenn mína vita af þessu sem allra fyrst!

   (7 af 50)  
1/11/03 03:01

Hakuchi

Ég skal heimsækja yfirmennina með hafnarboltakylfu og slípirokk. Það gengur ekki að traðkað sé á réttindum þínum á svo svívirðilegan hátt.

1/11/03 03:01

Skabbi skrumari

Þú átt með réttu að hafa efni á að eiga og reka að minnsta kosti fimm bíla, þrjú einbýlishús, sportbát og tvö sumarhús, annað á Flórída og hitt á Grikklandi og fara í heimsreisu tvisvar á ári... þetta gengur ekki lengur...

1/11/03 03:01

Vamban

Þú ert ekki kennari er það Frelli?

1/11/03 03:01

Frelsishetjan

Kennari! Nei ég lifi ekki á atvinnuleysisbótum ef þú ert að spyrja að því.

1/11/03 03:01

Lómagnúpur

Hversu umfangsmikil á þessi hækkun að vera?

1/11/03 03:02

feministi

Þegiðu strákur og haltu áfram að vinna!

1/11/03 08:01

Tigra

Ég skal borða yfirmenn þína! Ég nýt þess að slíta útlimi af yfirmönnum. Sérstaklega ef þeir eru olíufurstar.
Gallinn við það er að þá er hugsanlegt að þú fáir ekki mikið borgað meir

Frelsishetjan:
  • Fæðing hér: 3/10/03 17:51
  • Síðast á ferli: 4/1/08 18:58
  • Innlegg: 151
Eðli:
Drottnari allra vídda og sérlegur sendimaður Baggalútíu þangað.
Fræðasvið:
Svall, svall og aftur svall.
Æviágrip:
Líf mitt var frekar innantómt þangað til að deyjandi vinur minn gaf mér hringinn sinn eftir það jókst matarlyst mín á bæjarfólkinu og börnum. Var síðar vísað úr bænum og fór til fjalla. Lagði þar orka og fisk mér til munns. Kynntist þjófi og hef verið á eftir því sem hann stal frá mér síðan. Náði Hringnum eina aftur og til að gera langa sögu stutta, gleypti ég hann óvart og öðlaðist alheimskrafta.