Grípandi lag
Ókei...
Hey þú, ógislega töff .
Ég er að tala við þig.
Ég er Sivía night, kjáninn in the light.
Ég veit þú þráir mig.
Born in Reykjavík, hæfileikarík.
Ekkert landsbyggðar frík.
Ég veit að ég vinn fokkins úrslitin.
Öll hin liðin hafa tapað.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Júróvisionation fær sko flog er ég kem.
Ég er fædd til að vinna þetta, tremma í hel.
Töff, töff, töff...
Mitt lag ógislega töff, ekkert nineties ógeð.
Það er töff ókei, það er ekki gay.
Ég er komin hér tú stay.
En hinar tíkurnar, eru bólugrafnar.
En ég er hrein mey.
Þið elskið mig, þið dýrkið mig. (sæt)
En samt eitthvað svo glatað
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Júróvisionation fær sko flog er ég kem.
Ég er fædd til að vinna þetta, tremma í hel.
Je, je, je...
Ísland.
Til hamingju Ísland [7x]
Ring ring [4x]
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Júróvisionation fær sko flog er ég kem.
Ég er fer til að vinna þetta, tremma í hel.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér.
Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér.
Júróvisionation ég fer fyrir þig.
Rústa þessu dæmi, fæ tremma-vesti
Töff, töff, töff..
------------------------------------
Úffff þetta er svo flott lag!
Hún er best!
Litla dúllan okkar Íslendinga
Örugglega fínt lag miðað við hinn skítinn sem er í boði. Minnsti skíturinn í haugnum, hver veit?
Gísli,Eiríkur og Helgi veistu ekki hver Sivlía er?
Hún er drottning fræga fólksins á Íslandi.
Hún er ógislega töff.
Ég vil bara taka það hér fram (ef einhver var að velta því fyrir sér) þá hef ég EKKI sofið hjá Silvíu Nótt.
Ég vil bara taka það hér fram (ef einhver var að velta því fyrir sér) þá hefur Jarmi HELDUR EKKI sofið hjá mér.
Kæra plebbin, það er "shining in the light" ekki "kjáninn in the light"; "hreinn mey" ekki "hrein mey" og "fæ tremma mörg stig" ekki "fæ tremma-vesti".
Takk kærlega fyrir þessar leiðréttingar, Enter.
"tremma-vesti" Hljómaði nú líka eitthvað asnalega.
Þetta verður kosið 5 sinnum frá heimasímanum á mínu heimili og að auki fær það allavega 20 atkvæði samtals frá gemsunum...
Frekar mikil bjartsýni á þetta lag.
Ég held hreinlega að Silvía gæti staðið sig vel, flott að hafa einhvern svona karakter í þessu...
Ég vil senda Silvíu. Lagið er nett ruglað og hún er mjög svo áberandi karakter. Það er alveg kominn tími á að við íslendingar sendum eitthvað annað en gerilsneitt formúluvæl. Áfram Silvía!!!
Ég hef aldrei fyrirgefið Íslendingum fyrir að hafa ekki sent Botnleðu á sínum tíma. Eins mikið og mér leiðist Silvía Nótt, þá vona ég innilega og óska þess heitt að hún syngi fyrir okkar hönd, því þetta lag og þessi texti eru snilldin ein!
Húrra fyrir Silvíu Nótt!! [Furðar sig á hvaðan þetta kom]
Ég heyrði þetta lag nú í fyrsta skipti í gær og var ég þá vel við skál. Kannski var það þess vegna - en mér fannst það bara skrambi gott.
Ég hef aldrei verið aðdáandi Silvíu Nótt en ég held með henni. Það á engin eftir að gleyma henni svo að hún verður örugglega ofarlega í huga fólks þegar það kýs. Þett er líka frekar grípandi sýning hjá henni.
Áfram með Silvíu Nótt
Mafía 70.
odie er mafíósi.
Ef þú, odie, sérð þennan póst og ert enn á lífi, máttu afrita hann og birta, og þá vinnur mafían.
Ef þú ert dauður og birtir þennan póst eða gefur í skyn tilvist hans, vinna þorpsbúar. Ef þú ert mafíósi en heitir ekki odie, gerirðu ekki annað en að koma upp um þig og félaga þinn ef þú birtir póstinn eða gefur hann í skyn.
Eins og segir í upphafsinnlegginu, þetta er siðlaus leikur. Þó þátttakendum sé óheimlt að tala samn í einkaskilaboðum þá er þeim ekki bannað að tala saman á annan hátt, til dæmis hér.
3 verndarar? Ég hafi bara fundið upplýsingar um 2. Jæja. Það væri nú gott ef einhver rækist inn hjá mér, svo maður gæti komið út úr skápnum og klárað leikinn.
[dæs]
Þetta var nú skemmtilegt! Nú dunda ég mér við að hekla saman afgangateppi og undirbúa skattskýrlu móður minnar.