Baggalútur hlýtur 3 tilnefningar til íslensku tónlistaverðlaunanna.
Minns vill nú bara segja... Til hamingju
Tilnefningarnar voru...
Hljómplata ársins í dægurlagatónlist
Lag og texti ársins
og síðast en ekki síst „bjartasta vonin“
Ég ætla nú ekkert að hafa þetta lengra, en enn og aftur til hamingju með þetta.
Og gleðileg jól baggalútar!
plebbin hvar hefur þú verið þín hefur verið saknað, farðu nú að líta meira við hjá okkur. Já og Ritstjórnin/Baggalútur okkar ástsæla til hamingju..!..
[Hringir saltvondur í plebbana sem stjórna þessu]
3 tilnefningar ?
Buttercup hefur fengið 3. tilnefningar !
Vúhú! Til hamingju drengir. Þið eigið skilið að vinna öll þessi verðlaun.
Þið einokið þetta! [Prentar á boli [g]Baggalútur. Besta hljómsveit í heimi[/g]
Oss finnast þetta einkennilega fáar tilnefningar auk þess sem verðlaunaafhendingin verður ef vjer þekkjum rjett algjör skrípaleikur líkt og t.d. vefverðlaunin um daginn [Athugar hve mikið sje til aflögu af mútufje]. Þó er líklegast rjett að óska ritstjórn til hamingju og gerum vjer það hjer með.
Það verður að sjálfsögðu hneyksli hið mesta ef Baggalútur fær ekki öll þessi verðlaun.
Ég veit ekki hvort er gleðilegra, tilnefningarnar eða endurkoma plebbsins.
Ég vil biðjast afsökunar á að Baggalútur hafi ekki verið tilnefndur í öllum flokkum. Svo virðist sem útsendara baggalútíska heimsveldisins hafi gleymt að leggja fé inn á reikninga lykilaðila í tónlistariðnaðinum. Útsendaranum hefur verið lógað.
Mér finnst þetta alveg eðlileg þróun.
Fleiri tilnefningar myndu koma upp um "heildar-áætlunina" (e. the main plot).
-
Takk fyrir vinir mínir. 'Bjartasta vonin' er náttúrulega nafnbót sem maður verður eiginlega að fá fyrir fimmtugt.
Ljómandi fín tónlist hjá ykkur piltar, þið standið ykkur ágætlega við að auðga tónlistargáfu landans.
Tilnefningarnar þrjár eru gleðiefni, en ekkert jafnast á við ánægjuna af að sjá plebban á ný.
En hjartans gullið mitt, '3.' er raðtala; taktu þennan punkt út hið snarasta - og vertu ævinlega velkomin(n).
Sjaldséðir hvítir hrafnar. Til hamingju allir með tilnefningar og endurkomur.
Júlía, þú veist ekki hvað ég saknaði þín.
Já, ég kippi þessum punkti út. En því miður get ég ekki stoppað lengur, er að vinna við svo leynilega hluti.
...svo leynilega að ef ég segði þér frá því, myndi ég þurfa að drepa þig. Svona er nú það.
Sjáumst! Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár.
Til hamingju með tilnefningarnar, þó þær mættu vera fleiri. Það er einnig ánægjuefni að sjá plebban aftur.