— GESTAPÓ —
Miniar
Fastagestur.
Dagbók - 1/12/10
Svefnleysi

Þreyttur. Ég er svo þreyttur.

Síðastliðna daga hef ég verið það þreyttur að ég tapa klukkutímum hér og þar án þess að verða var við þá.
Það þreyttur að einföld innkaupaferð var eins og að klífa fjall.
Það þreyttur að mér er óglatt.
Alltaf óglatt.

Samt ligg ég hérna og get ekki sofið.

það er eins og skinnið iði og brenni af þreytu, en ég get ekki sofið.
Það er eins og brjóstkassinn sé við það að falla saman af þreytu, en ég get ekki sofið.
Það er eins og beinin í höndunum á mér séu úr blýi, alla vega meðan ég rita þetta, en ég get samt ekki sofið.

Nenni þessu ekki lengur!

(Afsaka lélegt rit. Kenni svefnleysinu um. Skammast mín bara andskotan ekkert!)

   (5 af 8)  
1/12/10 10:00

Regína

Svefnleysi er mjög þreytandi. En geturðu ekki bara sofið á daginn í staðinn?

1/12/10 10:01

hlewagastiR

Það sem þig vantar er amfetamín.

1/12/10 10:01

Grýta

Farðu varlega og vel með þig.

1/12/10 10:01

Kífinn

Prófaðu að skipta um vinnu, skilja (eða kvænast), flytja, fá þér nýtt nafn (í raunheimum) og frelsast inn í söfnuð. Hef heyrt að það virki.

1/12/10 10:02

Billi bilaði

Breyta nafninu í Svefleysi.

1/12/10 17:01

Sannleikurinn

flest fólk var sofandi en hjelt að það væri vakandi fyrir einhverjum misserum síðan. Horfðu á myndina They Live. Þá kannski vaknarðu alla leið......

Miniar:
  • Fæðing hér: 31/8/09 19:01
  • Síðast á ferli: 1/11/17 15:53
  • Innlegg: 268
Eðli:
Maðurinn með hattinn.
Fræðasvið:
Gagnslausar upplýsingar um allt mögulegt og fleira til.
Æviágrip:
Hættu að forvitnast!