Það gerðist svolítið skemmtilegt fyrir mig í gær...nei annars, það var ekkert ég.
Mér fyndist fallegra ef fólk segði "Það kom svolítið skemmtilegt fyrir mig". Ekki "gerðist fyrir mig"... í guðanna bænum.
Þessu er hér með komið á framfæri.
Ég vildi líka að fólk notaði ey í leyti þegar það er ekki að tala um leiti, sem það er reyndar næstum aldrei að tala um hvort sem er.