Rás eitt tók viðtal við Odd Benediktsson prófsessor í tölvunarfræði fyrir stuttu um hvernig tæknin myndi breyta og bæta líf okkar í framtíðinni. Það sem stóð uppúr í viðtalinu var að framtíðinni myndu bílar tala. Ég fór að velta þessari mögnuðu framtíðarsýn fyrir mér -- kannski munu fleiri tæki í framtíðini tala; Ég sé til dæmis fyrir mér að eftirfarandi gæti gerst ef ég hringdi í Odd eftir 15 ár. "Halló, símsvarinn er bilaður og ég held að Oddur sé ekki heima. Þú ert að tala við ískápinn. Ef þú talar mjög hægt og skýrt þá skal ég reyna að hengja skilaboðin með segli á mig."