Hmmm.... hugur minn fór á reik svona eins og hann á til að gera þegar kisan verður djúpt hugsi.
Ég mundi eftir lögum sem ég þekki ekki alveg nægilega vel, en mér skilst að það sé ólöglegt að vera nakinn á almannafæri.
Þá fór ég að hugsa... hvernig flokka þeir nakinn?
Ef ég labba út í gegnsæum fötum.... þá er ég ekki nakin.. er það?
Ég er í fötum... sem sést bara mjög vel í gegnum.
Gætu þeir bannað mér það?
Meina.. yrðu þeir þá ekki að banna allskonar tískuföt sem eru bara pínulítið gegnsæ?
Gegnsætt er alltaf gegnsætt.
Og hvað þá með allar smástúlkurnar sem ganga á götum úti í pilsum sem eru það stutt að þau eru eins og belti.
Eða bolir sem eru það efnislitlir að þeir eru varla nema bara hnappar rétt yfir geirvörturnar.
Hvar liggja mörkin?
Tigra mín það er nú alveg eitt og sér að vera svolítið ánægð með sig, en ekki fullmikið að birta svona myndir af sér á alnetinu. Ekki það að Riddarinn sé neitt að kvarta sko..!..
Mörkin liggja einmitt við mörkin. Það er að segja netið í mörkunum. Ef það sést betur í gegn en ef um net í marki væri að ræða þá er það nekt. [Límir á sig gerviskegg, fer í tweetjakkaföt og þykist reyka stóra og mikla pípu]
En mætti ég láta sjá mig úti í bol þessum sem á myndinni er, og buxum úr sama efni?
Þetta eru föt er það ekki það er ekki bannað að ganga í fötum á íslandi.
Ég held samt að vinnuveitandinn væri ekkert alltof sáttur ef maður kæmi í þessu í vinnuna.
Það hlýtur að fara mikið eftir, hvaða vinnuneitanda þú ert með. [Heldur áfram að flauta]
Má vera nakin í lopapeysu ? Nekt er flott þegar hún er pínu hulin. Ég er meistari í að afklæða kvenfók með augunum...
Flott mynd, er hún af þér? Annars eru mjög stutt pils í lagi, ef greitt er upp.
Skil hvað þú meinar Tigra mín...held að það sé bara að ef það sést í of mikið hold. Veit ekki hver mörkin á því eru samt...en á öðrum nótum mikið djöfulli er þessi kvensa með stórar geirvörtur!
Þessi klæðnaður verður sennilega ekki til vandræða á þessu skítkalda skeri.
Aumingja Tigra. Annað hvort er fataefni ákaflega dýrt í Síberíu eða Tigra er hræðilega fátæk fyrst hún hefur ekki efni á skjólbetri fatnaði en þetta.
Ég held að þetta sé spurning um siðgæðisvitund hvers og eins. En myndin er ágæt engu að síður. Hentar samt ekki alveg sem vetrarfatnaður á Íslandi.
Mér varð starsýnt á myndina.
Um hvað fjallaði félagsritið???????????????
Tígra, ef ég væri vinnuveitandi þinn þá myndi ég ekkert kvarta [veltir fyrir sér hvað Þarfi og Heiðglyrnir eru búnir að standa lengi á blístri og fer að flauta með þeim alveg undur hresst lag] Ég skal meira að segja hvetja þig til að ganga í svona fötum.
Svona fatnaður gæti náttúrlega talist kúnnahvetjandi og þar af leiðandi markaðsvænn. Þannig að kvenfólk á vinnustöðum þar sem allt snýst um peninga gæti örugglega komist upp með að mæta svona í vinnuna. Það er hins vegar annað mál með kennara og leikskólakennara - að ekki sé talað um aðstoðarkonur á skurðstofum (það má víst ekki trufla skurðlækna of mikið...).
Hvílíkt auglýsinga fals hjá annars traustvekjandi tígurdýri. Fyrirsögn og innihald gefa til kynna algera nekt en engri nekt er skilað, neytendasamtökin verða sett í þetta mál hið snarasta.
Nekt er bara góð. Ég geng nakin eins mikið og mögulegt er. Enda er fatahrúga í forstofunni hjá mér [Ljómar upp].
En utandyra fer nektarstigið eftir veðri og vindum. Frekar slæmt að vera nakin á norðurlandi núna!
Hvernig væri að halda hátíðlega Nakta daga, eða Nöktunótt í raunheimum?
Alveg einsog menningarnótt svokölluð og hommastolt..?
Allir að striplast í bænum, ég legg af stað núna.
[fer úr sokkunum og hleypur út]
Ef ég labba út í gegnsæum fötum ... þá er ég ekki nakin ... er það?
Ég er í fötum ... sem sést bara mjög vel í gegnum.
Jú reyndar. En þessi mynd,...já..já...næs.................................segi ekki meir