Ég var áðan úti að hjóla í rólegheitum, hugsandi um forna mafíuleiki og hvernig mafían á það til að snúa út úr orðum saklausra þorpsbúa. Sem sagt allt venjulegt, nema hvað að skyndilega kallar lítill krakki "Hommi... " og bendir í átt að mér.
Mér varð um og ó, hvað í ósköpunum hef ég gert til að verðskulda þetta, voru það bleiku hjólabuxurnar, rauða hjólið eða kringlóttu gleraugun sem fengu barnið til að kalla mig óverðskuldað homma. Ég missti einbeitinguna og hjólaði næstum á kyrrstæðan bíl.
Barnið hélt áfram að benda, grár köttur stökk út úr bílastæðinu og barnið sagði: "... og Jenni."
Hommi... Er það eitthvað fúkyrði í þínum bókum? Hvað ef barnið hefði hrópað upp yfir sig: ,,Grænlendingur"?