— GESTAPÓ —
Masi
Fastagestur með  ritstíflu.
Dagbók - 5/12/07
Hræðileg lífsreynsla

Ég var áðan úti að hjóla í rólegheitum, hugsandi um forna mafíuleiki og hvernig mafían á það til að snúa út úr orðum saklausra þorpsbúa. Sem sagt allt venjulegt, nema hvað að skyndilega kallar lítill krakki "Hommi... " og bendir í átt að mér.

Mér varð um og ó, hvað í ósköpunum hef ég gert til að verðskulda þetta, voru það bleiku hjólabuxurnar, rauða hjólið eða kringlóttu gleraugun sem fengu barnið til að kalla mig óverðskuldað homma. Ég missti einbeitinguna og hjólaði næstum á kyrrstæðan bíl.

Barnið hélt áfram að benda, grár köttur stökk út úr bílastæðinu og barnið sagði: "... og Jenni."

   (1 af 1)  
5/12/07 15:01

Dula

En hugljúft.

5/12/07 15:01

Dexxa

Skemmtileg lesning

5/12/07 15:01

krossgata

[Flissar]

5/12/07 15:01

Jóakim Aðalönd

Hommi... Er það eitthvað fúkyrði í þínum bókum? Hvað ef barnið hefði hrópað upp yfir sig: ,,Grænlendingur"?

5/12/07 15:01

Masi

Jóakim: Þá hefði sagan aldrei orðið til.

5/12/07 15:01

Kiddi Finni

Litil og góð saga.

5/12/07 15:02

Huxi

Eins gott að krakkakvölin veinaði ekki LESBÍA. Þá hefði Enter fengið flog.

Masi:
  • Fæðing hér: 21/4/08 19:59
  • Síðast á ferli: 5/5/09 00:24
  • Innlegg: 231
Eðli:
Helvítis forvitni er þetta. Hefurðu ekkert betra að gera en að lesa um nýliðadruslu, flónið þitt.
Æviágrip:
Dagur 1: Náði sér í nokkur innlegg til að geta nálgast mynd af sér. Engin mynd til, sendi einkapóst á ónefndan Gestapóa sem sagði mér að senda Enter einkapóst.Dagur 2: Leit við, henti tveimur sexum.Dagur 3: Kvartaði yfir myndaleysi á Í hverju ertu þræðinum.Dagur 4: Ritaði Undirskrift og fleira í Niðurskipan. Ítrekaði í fyrirspurn beiðni um mynd. Fíflaðist smá í Herbirni og sagði hann vera faðir minn. Tók þátt í nýliðatilraun þar sem áhrif neftóbaks og piparúða voru könnuð.