Síðustu misseri hafa það verið örlög undirritaðs að berja saman ljótar níðvísur um öðlinginn hann lappa. Algerlega óverðskuldað hefur þetta ljúfmenni orðið fyrir barðinu á níðskældnum rudda. Og til að kóróna sóðaskapinn hefur þessum óhroða nú verið safnað saman á einn stað – af því má þekkja innræti höfundarins.
17/10/08 15:01
Það tjóar víst lítið að lapp’ uppá þig
sem lastmælgi stundar hér inni.
Þá gagnast nú betur að ganga á svig
hjá grátlegri presónu þinni.
28/10/08 09:13
Ásjónan er ósómi og út úr korti.
Ávallt sinnir einu sporti:
Innistæðulausu gorti.
29/10/08 18:24
Níðskældinn nautnaseggur,
nýtur í skítnum að vaða.
Í knérunninn krónískt heggur
karlskrögginn þyrfti að baða.
3/11/08 21:11
Er furða þótt froskur snappi
í flóði af þvílíku krappi?
Sem notaður tíðatappi
er tútinn af ógeði Lappi.
14/12/08 21:59
Fastur er Lappi í fyrsta gír,
ferlega tæpur á sinni.
Þykir mér ýlda sú æði rýr
sem aðeins nær að skinni.
2/3/09 20:24
Það er líkt og hann ráðalaus rappi
runur af máttlausu krappi.
Þetta vandræðaskáld
sem af vitleysu er dáld-
il vorkunn. Vesalings Lappi.
20/4/09 20:26
Að níða hann Lappa er löðurmennanna starf,
svo létt sem það myndi nú reynast að hæða garminn.
Það er skítlegt að leggja í einelti örvasa skarf.
Eigi skal lasta maðkinn sem smýgur um þarminn.
19/11/09 21:38
Ég áður fyrr sem aðdáandi unni Zappa.
En nú er ég að lesa Lappa
og langar mest í sjó að vappa.
21/12/09 15:04
Hingað mætir einatt inn
ágætt fólk til ljóðaþinga.
En Lappi, hvar er þokki þinn?
Þú ert verstur Íslendinga!
30/12/09 22:04
Menn óska þess í öllum sínum bænum,
um allan heim er troðin sérhver kirkja,
að ekki seinna' en strax, í einum grænum,
erkifólið Lappi hætti' að yrkja.
9/2/10 20:18
Lappi, þú minnir á hlandforarhyl,
hornös sem fretandi stamar.
Líklegast þessvegna lögðu þeir til
að Lapparnir hétu nú Samar.
15/3/10 22:04
Siðblindur saurlífisdóni.
Sífullur hlandbuxnaróni.
Svo lýsi ég Lappa.
Mun líkast til klappa
er líftóran líður úr flóni.
1/4/10 07:11
Þú heldur að það séu skapandi skrif
að skíta út vini þína.
Ó,að hann Drottinn nú drægi' úr þér rif
og dýfði í endagörn sína.
Ellegar byrli þér endanlegt lyf,
svo endi nú loksins vor pína.
Hvílík umhverfinsvernd! Hvílík allsherjarþrif!
Hvílíkt öngþveiti meðal svína!
9/4/10 15:02
Að einelta þig finnst mér ekki neitt gaman lengur,
það einungis dregur mann niður í svínaríið
og tíkarlegt níðið sem tamið þú hefur þér drengur.
Að taka þig, væri þó gustuk, í bakaríið.
9/9/10 20:24
Allt þitt, Lappi, yfirklór,
afl mér sýnist skorta.
Því mannsorpsins í mykjuflór
minnstur ertu lorta.
30/9/10 09:19
Terrorista veit ég vappa
um vísnaþræði. Oft má líta
skáldagáfulausan Lappa
líkan sauði – úti að skíta.
3/10/10 11:25
Sú ljóðagerð er lapþunnt bull
og lin kartöflustappa,
sem rennur eins og rotið sull
úr raufinni á Lappa.
2/11/10 22:35
Kaunum slegið kynjadýr,
kleprað, hreistrað, loðið.
Í laupinn þar sem Lappi býr
er látnum einum boðið.
3/11/10 19:33
Forðum tíð eitt sinn ég hrósaði happi
er hundspott sem átti ég drapst vegna heimsku.
Skemmtileg hending, sá hét einmitt Lappi,
hræið var urðað – svo féll hann í gleymsku.
20/11/10 02:10
Eins og mella dönsk á götu gravid,
gengur lappi aftur – hláleg vofa.
En við sem hötum bæði hann og Davíð,
höllum okkur. Búumst til að sofa.
22/11/10 00:53
Á fótsnyrtistofunni er rekið upp ramarkvein
er rambar inn daunillur lappi með fótamein:
Táfýlu, fótsveppi, kartnögl og klof upp að höku,
klepra af taði, líkþorn. Og frumsamda stöku.
Ég er búinn að semja margar níðvísur um Hlebba en þar sem hann er nú orðinn kóngur þori ég ekki að birta þær.
Það tilkynnist hér með að Offari má birta og á að birta níðvisurnar um mig. Níð er gott.
Listafögur ljóðin ofið
Lappi hefur - og tindum náð.
Reynist oftast ofurlofið
aðeins vera spé og háð.