— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Gaflari
Óbreyttur gestur með  ritstíflu.
Dagbók - 31/10/06
Gaflarína

Það er ég. Gaflari og gaflarína.

Halló!
og hjartanlega verð ég vonandi velkomin hér.

Nýtt líf, ný stund og nýr staður.

Ég er örlagatrúa. Fott, smart, og klár, svolítið áttavillt og draumórakennd.
Ég elska að búa meðal skynsamra, sterkra og velútlítandi manna.

   (1 af 1)  
31/10/06 21:00

Litla Laufblaðið

Já ég held að þú finnir enga slíka menn hér, því miður.
Velkomin annars.

31/10/06 21:01

Huxi

Ekki hlusta á Litlu Lauf, hún er bara abbó. Það er fullt af okkur gáfumönnunum hérna og svo erum við skemmtilegir og fallegir líka (sjá mynd af mér). Sjáðu hvað ég get. Ef ég held fyrir aðra nösina get ég blásið kúlu með hinni. [Flissar eins og fáviti]

31/10/06 21:01

Upprifinn

Velkomin. þú verður nú samt að sætta þig við að ekki eru allir hér jafn vel útlítandi og ég enda mundi það nú bara valda vandræðum.

31/10/06 21:01

krossgata

Smá pikk: Örlagatrúar. Flott.
Ferlegt þegar maður flýtir sér að skrifa þegar maður hittir svona marga vel útlítandi menn þá svíkja fingurnir mann og stafur og stafur gleymist.
Velkomin.

31/10/06 21:01

B. Ewing

[Stelur stafnum "P" af lyklaborði Gaflarínu] Reyndu núna að panta pepperónípizzu! [Hleypur hlæjandi í burtu með P-ið]

31/10/06 22:00

Sundlaugur Vatne

Hmmm...
Þú lofar nú ekkert sérstaklega góðu.

31/10/06 22:00

Tina St.Sebastian

Bíddu Sundli minn...ef ég segi svona fæ ég félagsrit í rassgatið (við hliðina á kústskaftinu)... [Forðar sér]

31/10/06 22:01

Haraldur Austmann

Farð´í rassgat.

31/10/06 22:02

Hakuchi

Lærðu til að lifa.

Blessaður Halli minn.

31/10/06 22:02

Blástakkur

Örlagatrú? Hræðileg örlög það.

Samræmist ekki nógu vel fjölheimskenningunni til þess að ég geti sætt mig við það. Nema maður skilgreini örlög sín sem hvaða örlög sem er. Þá er ég örlagatrúar. Nema hvað að ég trúi ekki neinu svo leikandi létt.

Kannski ég haldi bara áfram á leið minni til fullkomins afslappelsis. Nirvana hins lata manns sem hefur snúið baki við öllu stressi.

31/10/06 23:00

Limbri

"Litla Laufblaðið

Já ég held að þú finnir enga slíka menn hér, því miður."

Ég þakka pent!

[Arkar út í fússi]

Gaflari:
  • Fæðing hér: 21/10/07 02:39
  • Síðast á ferli: 21/10/07 03:45
  • Innlegg: 10