Ásgerður hét stúlka ein úr Fljótunum. Hún sótti mjög í síldveiðisjómennina á Siglufirði og þótti sveitungum hennar hún vera laus á kostunum. Því kölluðu gárungarnir hana ávallt Lim-Gerði.
Bróðir hennar, hann Steinn, gerðist tannlæknir en þá fóru gárungarnir að kalla hann Tann-Stein. Hann þoldi það ekki og skipti yfir í nýrnalækningar en var eftir það aldei kallaður annað en Nýrna-Steinn. Hann ákvað að skpta aftur um grein. Sérfræðinám lækna tekur mörg ár og nú skyldi hann vanda valið betur. Hann sneri sér að kvensjúkdómalækningum, það ætti að vera útilokað að snúa út úr því. Það skjátlaðist Leg-Steini illa.
Svo var það yngsti bróðirinn, Bogi hommi, sem gerðist veðurfræðingur. Hann Regn-Bogi.
Ég þakka þér fyrir góðar og gagnmerkar viðbætur við þetta sögukorn mitt. Það er alltaf hægt að ganga að því vísu að þú getir auðgað og bætt allt sem þú kemur nærri.
Þetta er falleg saga og erótísk í ofanálag.
Sjálfur reyndi ég forðum að festa Limgerðar-nafnið við konu sem þá var ræktunarstjóri í gróðrarstöð Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi (og heitir Valgerður). Það fór útum þúfur þar sem hún var ein um það auk mín að finnastt þetta fyndið.