Þeir gestapóar sem nota einnig Fésbók eru hvattir til að skrá sig í þennan hóp.
Ég á einn 20.000 kr Zimbabwe dollara hérna heima. Gaman er að segja frá því að fátæktin er þvílík að þeir hafa einungis efni á að prenta öðru megin á seðilinn. Hinumegin er bara smávegis munstur.
Bæði Zimbabwe og Zambiu seðlar eru síðan mjög sérkennilegir viðkomu. Eiginlega frekar plastkenndir og það rúllast skemmtilega upp á þá ef maður er með þá í veskinu sínu lengi.
Ég finn nú bara til með fólkinu sem þarf að búa við þessa hræðilegu eymd í Zimbabwe. Íslendingar eru alltaf jafn smekklegir að bera sig saman við "óæðri" þjóðir.
Þeir stóðu þó altént af sér atlögu hans þarna mannætunnar og Bretadindilsins sem ætlaði að steypa Hróbjarti vini mínum Mugabe af stóli. Þar með fer allt að skána.