— GESTAPÓ —
Sverfill Bergmann
Friðargæsluliði.
Fastagestur.
Dagbók - 1/11/03
Hringavitleysa vegna viðgerða Símans

Símamenn tóku upp á því fyrir rúmri viku að fikta við símstöðina í mínu hverfi, sem er svosem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að tilgangurinn var að stækka og bæta nettengingar á kerfi Símans.
Ekki tókst þeim betur til en svo að tengingin mín hvarf úr kerfinu. Kannski varð hún svo stór að hún fór einfaldlega í hring og endaði aftur á núlli?

Ég tek það fram að mín netþjónusta er ekki hjá Símanum, en netveitandi minn kaupir sínar línur eða tengi þar.

Eftir 9 daga af símtölum og dellu fatta Símamenn það að einhver maðkur er í mysunni og gefa spyrja heimskulegra spurninga eins og "Hefurðu reynt að tengjast netinu?".
Hverslags hálfvitaspurning er það?
Auðvitað hef ég reynt. Það var á endanum starfsmaður netveitanda míns sem sá vandamálið og gat leitt þá Símamenn í gegnum viðgerðina, en það broslegasta er að hann sá þetta á innan við mínútu...Simamenn höfðu rýnt í þetta í níu daga.

Símamenn fá spark í rassinn fyrir heimsku sína og mín netveita fær fálkaorðuna fyrir að sparka í rassinn á þeim.

Einnig fá þeir 5 stjörnur fyrir glaðninginn sem beið mín þegar tengingin fór aftur í gang...

   (5 af 12)  
1/11/03 11:02

Goggurinn

Hvaða glaðning mun það hafa verið?

1/11/03 11:02

Tannsi

Væntanlega Baggalútur.

1/11/03 11:02

Goggurinn

Já, að sjálfsöðu, kjáninn jeg, <s> jeg vissi þetta þó alveg...</s>

1/11/03 12:00

Sverfill Bergmann

Já og fleira til...

1/11/03 12:00

Galdrameistarinn

Bara dæmigert fyrir vinnubrögð símanns. Mætti halda að þeir væru ekki starfi sínu vaxnir.

1/11/03 12:00

Sverfill Bergmann

Já, þeir þyrftu að hysja upp um sig buxurnar...

1/11/03 12:00

Galdrameistarinn

Fyrst verða þeir nú að rífa handleggina á sér út úr rassgatinu.

1/11/03 12:00

Sverfill Bergmann

Það gæti reynst erfitt...

1/11/03 13:00

Nornin

Ég hata símann... er búin að vera með gsm hjá vodafone í tæp 5 ár vegna þess að síminn sendi mér árið 2000 reikning upp á 30.000 fyrir talhólfi sem ég lét gera óvirkt 1998!!!!!!
Hata hata hata símann!!

1/11/03 14:01

Sverfill Bergmann

Tek undir það. Sendu mér 100.000 króna reikning fyrir notkun á GSM númeri. Málið var bara að ég var ekki með þetta númer, heldur hafði einhver fengið númer út á mitt nafn.

2/11/03 00:01

Týr

Bara svona af forvitni, hvað var þessi glaðningur? :)

2/11/03 03:01

Trommudruslan

Ég hata símann og bíð spenntur að sjá hvernig hive.is mun spjara sig. Spenntur ójá!

Sverfill Bergmann:
  • Fæðing hér: 22/9/03 13:51
  • Síðast á ferli: 13/11/17 19:33
  • Innlegg: 129
Eðli:
Ka wani putiputi.