— GESTAPÓ —
woody
Fastagestur.
Dagbók - 2/12/07
f´élagsrit segiði?

þar sem ég er loksins farinn að gera eitthvað að viti....

já, umsögn færslunar er hægt að tengja við það að ég er loksins hættur í skóla í bili, hættur að vera alltaf skítblankur, geta unnið fullann vinnudag, kominn á bíl sem ekki var smíðaður á síðustu öld, kominn í nýtt og stærra herbergi, og svo mætti lengi fram telja.

En annars, Febrúar hefur yfirleitt verið fremur dimmur og leiðinlegur, en nú síðustu ár hefur hann verið æðislegur. brjálað stuð, allar helgar uppbókaðar, þorrablót, þorrablót, árshátíðir, góður félagsskapur og allt í gúddý.

en allavega, aðalástæða þess að ég er að skrifa er sú að ég hef ekkert annað að gera um dagana, þar sem ég er frá vinnu vegna smávægilegs vinnuslyss sem ég varð fyrir um daganna.

En þar sem ég búinn að missa einbeitinugnna við mitt fyrsta félagsrit þá held ég að ég láti þetta duga í bili.

'till next time,
skál í botn!

   (5 af 5)  
2/12/07 11:02

Upprifinn

Þvílík innkoma

Bravó.

2/12/07 11:02

Billi bilaði

hv að eruð ámarðgar sta´nfisemtningar villur íþetsu félsxriti?

2/12/07 11:02

Garbo

Hvað segirðu..vinnuslys? Hvernig datt þér það í hug?

2/12/07 12:00

Dula

Frábært, og þetta fæelagsrit er cool.

2/12/07 12:00

Dexxa

Ekki var mitt fyrsta félagsrit svona flott..

2/12/07 12:01

woody

Hey Billi eins og kemur fram í þessu driti er ég hættur í skólanum í bili svo að ég þarf ekkert lengur að vanda StAfSeTnInGuNa
-ullar á Billa-

2/12/07 12:01

Anna Panna

[Hrökklast afturábak og hrasar illilega við] Líttu á Baggalút sem skólastofu. Hér ættirðu alltaf að vanda stafsetningu!

Annars fínt félagsrit, það er alltaf gott að hvíla sig á blankheitum og öðrum ömurleika, svona öðru hvoru!

2/12/07 12:01

woody

Já, já Anna mín Panna, það er bara svo langt síðan að ég hef villst hingað inn að ég er farinn að ryðga í almennri kurteisi og stafsetningu...

[roðnar smávægilega]

2/12/07 12:01

Billi bilaði

<Bindur hnút á tunguna á woody>

2/12/07 12:01

woody

<vefst tunga um tönn>

2/12/07 12:01

Billi bilaði

<Losar flækjuna og gefur woody blútkút>

2/12/07 12:01

Rattati

Svona svona, hann tók sig á, gefið honum nú hrós fyrir það.

2/12/07 12:02

B. Ewing

Ef það voru margar villur í þessu riti þá eru þær fáar núna.. [Ljómar upp] Nokkuð góð innkoma.

2/12/07 12:02

Nermal

Ég hef einkarétt á stafsetningarvillum á Baggalút. En endilega vertu duglegri að skrifa.

2/12/07 12:02

Kargur

Nermal, fyrst svo er, þá ættirðu að rukka GEH um afnotagjöld af einni eða tveimur stafsetningarvillum.

2/12/07 13:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Fínt rit

2/12/07 16:01

Z. Natan Ó. Jónatanz

Þú er nú meiri kallinn.

2/12/07 18:01

Texi Everto

Hæ. Ég er gulur. Alveg eins og þú!

woody:
  • Fæðing hér: 29/3/07 12:35
  • Síðast á ferli: 4/5/11 20:16
  • Innlegg: 547