svona í tilefni tíðarandans
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og setja tappa í ákavítis flösku sem enn eitthvað er eftir í?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi af illskæðri fuglaflensu alheilbrigður?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi til þess að hefja kennslu í grunnskóla sjálviljugur og ó menntaður, vegna þess að manni leiðist að heyra neikvæðar fréttir af fundum ríkissáttasemjara og samninganenfnda sveitarfélaga og kennara í upphafi langs verkfalls?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi geta sagt fyrir um hvort að úrvalsvísitalan eigi ekki eftir að hækka meira?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og svipta góðan og gildan ríkisborgara vegabréfi hans?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og fara einusinni enn í kirkju?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og fara heimtíl sín í upphafi góðrar sirpu á Hjálmi lífisnis?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og borga fyrir gistinguna?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og telja sig læknaðan af ævilöngu mikilmennsku brjálæði?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og hætt öllum trésmíðum?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og biðja vini manns um að þukla mann?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi þegar maður gæti kúrað lengur inni á þægilegum stað?
Ef ekki, þá var þetta kraftaverk.
[Quote: Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi og biðja vini manns um að þukla mann?
Mun maður einhverntíman rísa upp á þriðja degi þegar maður gæti kúrað lengur inni á þægilegum stað?]
Ekki ef þetta tvennt á sér stað á sama tíma! Þá held ég að betra sé að liggja bara kyrr.