— GESTAPÓ —
Urmull_Ergis
Nýgræðingur.
Pistlingur - 2/11/10
Kínverjar.

Kínverjar á góðu verði.

Á til skiptanna nokkurn slatta af Kínverjum sem mér áskotnuðust nýlega á ferð minni um austur kína. Þeir eru kassavanir en landlausir. Þeir eru leikglaðir, en þeim hættir til þess að týnast því þeir hænast að víðernum. Þeir eru örmerktir og með gps flögu og kosta um 15 þús kall stykkið. Get farið með þá til Ögmundar og látið bólusetja þá fyrir landakaupum. En það kostar 5 þús kall aukalega.
Hafið samband í síma 5522310

   (1 af 23)  
2/11/10 04:01

Offari

Ertu að flytja inn kínverskt drasl?

2/11/10 04:01

Regína

Ég vil frekar kínverja sem kunna að nota salerni. Áttu þannig?

2/11/10 04:01

Urmull_Ergis

Þetta eru öndvegis kínverjar, ekkert drasl. Það kostar aukalega að fá salernisvana kínverja.

2/11/10 04:01

Vladimir Fuckov

Eigið þjer nokkuð Kínverja sem hægt er að sprengja ? [Ljómar upp og sjer fram á stækkandi vopnabirgðir]

2/11/10 05:01

Kiddi Finni

Salernisvana? Svifta af þeim salerni? Eða salernisvenja, kannski? ('i allvöru, hvernig er það?)

2/11/10 05:01

Heimskautafroskur

Hehe – salernisvanir eru þeir sem eru vanir að nota þannig. Biðji maður um þannig í fleirtölu og karlkyni, biður maður um salernisvana. En kannski alveg jafn gott að vera skilningsvana.

Kassavanir Kínverjar stuðla samt og þess vegna skemmtilegri.

2/11/10 05:01

Huxi

Fjandinn hafi það að ég fari að skipta út Færeyingnum fyrir kassavana Kínverja. Ég sem er búinn að gera hann algerlega húsvanann og temja úr honum allt strok. En verðið freistar...

2/11/10 05:02

Texi Everto

Salernisvanir eru aðvitað eins og Pepsí útgáfan af Salernisæsum

2/11/10 05:02

Urmull_Ergis

Huxi, hvað með kynbætur? Æxla saman Færeyingnum og Kínverja? Það væri nú gaman að því að fá fallega dökkhærðan færeying sem talaði kínversku og kynni að nota klósett ha? eða hvað?

2/11/10 05:02

Regína

Mér var svarað mjög kurteislega þegar ég hringdi, en bentu mér á Flugeldasölu björgunarsveitanna, þar væru þeir í kössum vanalega.

2/11/10 02:02

Heimskautafroskur

Í þríhyrnda skotinu utan í grjótinu vour kamrar, hurðaandvanir.

2/11/10 03:01

Urmull_Ergis

Hurðalausir kamrar utan í kletti? Nýstárlegt bölv vænti ég.

2/11/10 16:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Óskaplega eru þið skrítin og mjó í hugsun

1/12/11 14:01

Urmull_Ergis

Jú takk fyrir það Gísli Eiríkur og Helgi, það var nú áramótaheitið hjá mér núna 2012.

Urmull_Ergis:
  • Fæðing hér: 13/9/03 10:15
  • Síðast á ferli: 5/2/12 21:25
  • Innlegg: 2
Eðli:
-Af fágætri tegund gabbapa, sem eiga uppruna sinn á Súmötru. Skottlausir, en vel vaxnir niður, grænleitir, skapstyggir, matfrekir og málóðir.
-Listelskir og sístarfandi. Öpum þessum hættir til nymphomaniu og ofdrykkju.
Fræðasvið:
-Umhverfisalfræði. -Fjöldi skrifaðra vísindagreina um gulrætur, auk tímamótaritraðarinnar Rollur sem gæludýr.
Æviágrip:
-Minnisleysi einkennir gabbapa, því lifa þeir við þann misskilning að þeir séu nýfæddir á hverjum degi. Því eru æviágrip óþekkt meðal þeirra.