- Auglýsing -
Lýst er eftir leikmönnum í mafíuleik, hvort heldur sem er reynsluboltum eða nýliðum. Skráning fer fram í þar til gerðum þræði á Okkar málstað. Stefnt er að gangsetningu leiks innan tveggja vikna.
Ég biðst velvirðingar á óriti þessu, sem verður eytt þegar leikur hefst.
Ég held það séu flestir hérna komir a. m. k. á kynþroskaaldur og því sífellt örðugra að finna þátttakendur í svona nokkuð.
Nei, ég skrái mig ekki neitt!!! Það er kvöl og pína að spila þennan leik því ég skil hann alls ekki.
Alveg eðal laumupúkaþráður sko.
uglustrákurinn er orðinn laumupúkamafíósi.
Ef þú, uglustrákur, sérð þennan póst og ert enn á lífi, máttu afrita hann og birta, og þá vinnur mafían.
Ef þú ert dauður og birtir þennan póst eða gefur í skyn tilvist hans, vinna þorpsbúar. Ef þú ert mafíósi en heitir ekki uglustrákurinn gerirðu ekki annað en að koma upp um þig og félaga þinn ef þú birtir póstinn eða gefur hann í skyn á nokkurn hátt.
Þetta er siðlaus leikur. Þannig er það nú.
Ég sé hérna fyrir ofan, að Ásmundur kann að laumupúkast, en hefur ekkert gert það núna. Ég sé hvergi upplýsingar um hann á laumupúkaþráðum.
Ég hef Ásmund grunaðan um að lesa ekkert nema mafíuleiki. Ég reyndar er oft þannig líka á meðan ég tek þátt í mafíuleik. Þess vegna var ég svona lengi að detta út fyrir boxið og laumupúkast núna í þessum.
[Grípur fyrir augun af hneykslun á sjálfri sér]
Nú gæti ég klárað leikinn því uglustrákurinn er ofurlaumupúki.
Ég er hins vegar að hugsa um að mála húsið mitt aðeins og gefa stráknum smá séns. Ef ég verð ekki komin inn klukkan níu þá megið þið hringja í neyðarlínuna og segja henni að Regína hafi örugglega dottið úr stiga og liggi líklega hálsbrotinn úti í garði
krossgata, grunur þinn er ekki réttur. Ég les félagsritin líka, og renni stundum yfir kveðskapinn, þó ég sé minna en enginn hagyrðingur.
Sem ég segi, ég kann alveg að laumupúkast, en það var bara komið úr tísku þegar ég byrjaði á því. Það er ekkert gaman að laumupúkast einn.