Eðli:
Áræðin Önd sem svífst einskis í baráttunni fyrir réttlæti. Hjálpar hverjum sem er , ef sá hinn sami þarfnast þess. Gulur á litinn, með rauðan trefil, og með dökkgul sundfit.
Æviágrip:
Fæddur í Hollandi í stórum klossa. Missti báða foreldra og öll systkini snemma á lífsferilnum. Alinn upp af Hinrik (Moldvörpu) og hef alltaf litið á hann sem föður minn, þrátt fyrir stríðni Dolla kráku. Hef barist við fjöldamörg vandamál og þar á meðal má nefna:
*Barist gegn kynþáttafordómum (hvítar gæsir gegn svartöndum)
*Barist gegn HIV (Bjargað með fiðlu sem kom frá tungltrúði)
*Barist gegn hvalveiðum (hljóðbylgjur komu þá til bjargar)
*Barist gegn ofveiði á síldarstofninum (þakklátir hvalir hjálpuðu til)
*Barist gegn einvaldinum Dolla (sem var einskonar Napóleon+Hitler)
*Barist gegn ketti sem hrelldi mig í æsku
*Barist gegn manni (og hjálpaði þannig MANNATEMJARANUM)
*Barist gegn illum anda í flösku
*Hjálpað geimverum að flýja jörðina með ávexti
Inn á milli hafði ég svo tíma fyrir kærustuna og vini, auk þess að slaka bara á í skákleik með honum Hinrik pabba.