Ég er að leita að þér. Hvar ertu?
Aldrei hef ég ort þér ljóð
ekkert sagt af viti
Dýrðarinnar Dulu fljóð
dásamar mína liti
Komdu til mín kæra þú
kvöldið verður okkar
Ég skal til þín byggja brú
berlega þú rokkar
Gerum okkur glaðan dag
gleymum öllu súti
Yrki til þín bónar brag
Bagga- hér á -lúti
Vá, aldrei hef ég fengið til mín svona mikla athygli útaf akkúrat engu . [roðna niðrí tær]
Vertu ekki að reyna við mig þarna kerling - ég kæri þig! - Ég er undir lögaldri!
Þetta eru bara skrambi fín ljóð hjá þér Mikki. Bjargfastur yrði stoltur.
Skál!
Snorturlega ort til snoppufríðrar snótar. Og finngákn SKAMMMASTU ÞÍN !!! svona hegðar maður sér ekki við kvennfólk!!
Nermal minn, kærar þakkir fyrir að verja mig fyrir þessum apa, en þú sérð að honum er ekki sjálfrátt því hann er grænn af öfund.