— GESTAPÓ —
Ziyi Zhang
Óbreyttur gestur.
Saga - 1/11/05
Philly Cheung III

Geislar sólarinnar höfnuðu á Philly þar sem hún svaf vært. Hún rumskaði, teygði sig og geispaði. Hún stökk á fætur,fór úr náttfötunum og lagði þau snyrtilega í fataskúffu. Því næst klæddi hún sig. Hún klæddist hvítum löngum sokkum, hnésíðu svörtu pilsi, hvítri skyrtu og föl bleikri bómullar peysu utanyfir og lét kragan standa útúr. Síðan fór hún í þunna blóðrauða ullar peysu utanyfir með gyltum hnöppum. Að lokum fléttaði hún hár sitt, fór í hælalausa svarta skó og skoppaði niður í morgunmat.

Við morgunverðar borðið sátu bræður hennar en þeir höfðu verið heima um helgina í heimsókn. Því þeir námu báðir verkfræði í Richmond. Móðir þeirra steikti egg handa þeim. Philly fúlsaði við eggjunum, hitaði vatn og fékk sér pakka hafragraut. Því næst kveikti hún á litla sjónvarpinu í eldhúsinu, á dagskrá var ,,Góðandag Virginía”. Þar var verið að sýna frá blaðamannafundi Bill Clinton.

Þegar hann var spurður um eiturlyfja notkun svaraði hann. ,,Ég hef aldrei brotið lög lands míns.” Það svar reyndist vera lögmannsleg málfars brella, það kom glögglega í ljós þegar blaðamaðurinn spurði hann um lög í öðrum löndum.

,,Svarið við þeirri spurningu er að ég hef aldrei brotið ríkislög” Sagði hann.

,,Þegar ég var í Englandi, þá prófaði ég marijúana einu sinni eða tvisvar, mér líkaði það ekki og ég andaði ekki að mér.” Sagði hann svo með yfirlætislegu glotti.

,,Það er ekki mikið mál” hélt hann áfram.

Áhorfendunum var skemmt að fyrverandi forseti þeirra hafði neytt eiturlyfja. En Philly var síður en svo skemmt. Hún lagi skeiðina í ilvolgan hafragrautin og dæsti.

,,Ef það er ekki mikið mál, afhverju barðistu fyrir strangari fíkniefna löggjöf með meiri viðurlögum?” Spurði hún.

,,Fleirri eru handteknir fyrir hald á marijúana en nauðganir, rán, morð og líkamsárásir samanlagt. Og hvað gera stjórnmálamenn? Þeir gantast með neyslu sína í sjónvarpinu en ef almúgamaðurinn er með slík efni undir höndum þá handtaka þeir hann! – Hræsnarar.”

Móðir hennar leit hálf áhyggjufull á hana meðan faðir hennar gat varla varist brosið. Bræður hennar sem hún kaus að kalla ,,doobie bræður” veittu henni þögult samþykki sitt og bros. Því næst kláraði hún hafragrautinn sinn og lagaði sig aðeins til inn á klósetti. Síðan kvaddi hún bræður sína og foreldra og gekk að stoppistöð skólabílsins.

   (27 af 29)  
1/11/05 19:01

krumpa

Bíð spennt eftir meiru...

1/11/05 19:02

Heiðglyrnir

Bíður spenntur með krumpu...

1/11/05 20:00

Jóakim Aðalönd

[Poppar maís í örbylgjuofninum og sezt í sófann]

1/11/05 20:00

Þarfagreinir

Er þetta svona hentai?

1/11/05 20:00

Ziyi Zhang

Haha, Freudískt feilspor væri kannski nærri lægi.

Ziyi Zhang:
  • Fæðing hér: 13/11/06 17:34
  • Síðast á ferli: 1/12/08 08:26
  • Innlegg: 75
Eðli:
Æðisleg í alla staði.
Æviágrip:
Fæddist árið 1979 í Peking, Pabbi minn er hagfræðingur og mamma mín var leikskóla kennari. Ég hef leikið í fjöld kvikmynda á borð við þvottabjarnar prinsessan, Vegurinn heim og Hetja.