I. O. O. F. 1 - 1235168Va - XX. 9.III
Næturlæknir er í nótt Gunnar Cortes, Eiríksgötu 11. Sími 5995.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Jakobína Erlendsdóttir, prests í Odda, Rangárvöllum, og Árni Jónsson bifreiðarstjóri, Bankastræti 14.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Dóra Guðmundsdóttir, Klapparstíg 44, og Sigurður Magnússon útgerðarmaður, Eskifirði.
Tónlistarfjelagið og Leikfjelag Reykjavíkur vilja vekja athygli leikhúsgesta á því að sýningin í kvöld á óperettunni Nitouehe - byrjar kl. 8.30.
Próf og áheit. Bekkur einn í Mentaskólanum hjet nýlega á Strandarkirkju, 1 kr. hver nemandi, ef þau slyppu við próf. Þau sluppu og hafa nú greitt biskupi áheitið, 25 kr.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Útvarpssagan: Kristín Lafransdóttir, eftir Sigr. Undset.
2.1.00 Hljómplötur: Lög leikin á celló.
21.05 Garðyrkjuþáttur (Jóhann Jónasson ráðunautur).
21.25 Hljómplötur: Fegurð vorsins tónverk eftir Stravinsky.
21.50 Frjettir.
Takk fyrir þennan fróðleik.
Mikið óskaplega hlakka ég til að heyra útvarpssöguna.
Hvur andskotinn, ég missti af Þingfrjettunum. Skyldi þetta vera komið á hlaðvarpið?
Ljóst er að allar mínar fyrri hugmyndir um að dagbækur eigi að vera handskrifaðar , eru eistar á fölskum forsendum , í sjálfsblekkingu og ónauðsynlegri og gersamlega óþarfri sjálfsvorkunn.