Dánarvottorð
Nafn hins látna: Haraldur Austmann
Kennitala: 320226-6669
Heimilisfang: Dvalarheimilið Kistan, 900 Krummaskuð
Dánarorsök: Leiðindi.
Krummaskuð 17. október 2006 klukkan 17:31
Jón Hóstan héraðslæknir.
Hans síðustu orð voru: Er þetta ekki orðið ágætt bara?
Jarðneskum leifum hefur verið kastað fyrir hundana að ósk hins látna.
Andlit aukasjálfs
Haraldur Austmann bar ásjónu Michael Caine. Hann er svalur. Má ég eiga myndina?
Nei, ekki þú Offari. Þú gætir ekki farið þótt þú vildir, ekki frekar en ég. Þú myndir deyja úr fráhvarfseinkennum, eins og ég.
Var Haraldur bara aukasjálf? Hver er ég?
Er ég kannski bara enn eitt aukasjálfið kannski er ég aukasjálf Úlfamannsins svona einsog í Fight Club eða er ég vírus sem sendi bara morðhótanir.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA!!!!!!!!!!!!!!!!
(vaknar í svirtabaði og setur drauminn sinn inná Baggalút)
Takiði ekki mark á Huga. Þetta er helvítis óbermi sem nú er búið að krossfesta og hann verður étinn í kvöld.
Ég fékk eitt sinn draum um að vera krossfestur, háttvirt mannæta Haraldur Austmann (og með því að vera mannætur eigum við báðir eitthvað sameiginlegt hér). Sá var heldur lítið geðslegur draumur, og verkjar mig í hendurna og fæturna í hvert sinn sem ég hugsa um martröðina.
Hvar er Haraldur? Ég sá frumeintakið bráðlifandi um daginn en Halli virðist vera horfinn..