— GESTAPÓ —
Nætur Marran
Óbreyttur gestur.
Saga - 3/12/05
Nætur Marran

Þar sem ég er nýlega komin með nýtt viðurnefni sem ég geri ráð fyrir að menn klóri sér örlítið í hausnum yfir, þá ákváð ég að veita stutta kynningu á merkingu þess.

Nætur Marran (stundum þekkt sem Svarta Marran er eitt versta draumatákn sem þekkist. Hún er dökk yfirlitum, með svart hár sem hylur andlit hennar að mestu svo að það eina sem þú sérð er grimmilegt glott á vörum hennar. Hún er alltaf svartklædd og þá í glæsilegum samkvæmiskjól, jafnvel með herðaslá. Ósjaldan sést til skósveins hennar í nágrenninu en hann er fremur lágvaxinn maður með þunnt snöggt hár og há kollvik, klæddur svörtum jakkafötum.
Ef þú hefur rekist á Nætur Mörruna í draumum þínum og lifir til að segja frá því, þá telst þú lukkunnar pamfíll eða bara með mjög sterkan lífsvilja. Því að menn telja að Nætur Marran heimsæki fólk ekki nema í þeim tilgangi að enda jarðbundna tilvist þess. Og þeir sem muna eftir henni, segjast flestir hafa fengið val um líf eða dauða.

Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það trúi ekki allir á draumráðningar og dulspeki en þessar upplýsingar nálgaðist ég í kjölfar þess að hafa dreymt þessa konu, en þá fékk ég valkostinn að setjast við sama borð og hún eða hlaupa.
Þær upplýsingar sem eru til um Nætur Mörruna eru eingöngu gróusögur, byggðar á getgátum og samtölum manna. Svo að í engu tilviki skal þessi saga tekin sem heilagur sannleikur, heldur mesta lagi sem ígrundunarefni.

   (6 af 7)  
3/12/05 22:01

Ira Murks

Er það ekki Mara með einu erri?
http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1168

3/12/05 22:01

Offari

Ég sem ætlaði að fara að bjóða þér í heimsókn. <hættir við>

3/12/05 22:01

Enter

Marran er væntanlega skyld morranum. Eða Kvaran-hyskinu.

3/12/05 22:01

albin

[Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri] þetta finnst mér fyndið, sérstaklega þegar horft er til skósveinsins "en hann er fremur lágvaxinn maður " [Glottir eins og fífl] Brara gaman.

3/12/05 22:01

Haraldur Austmann

)

3/12/05 22:02

Nermal

( Fær alvarlegt hláturskast) Lítill skósveinn...

3/12/05 22:02

Gottskálk grimmi

Ég held að þú ættir fara fram á það við stjórnendur hérna á vefnum að fá nýja einkennismynd.
Þessi hæfir þér engan veginn.

3/12/05 22:02

Nætur Marran

Engar myndir lýsa því sem ég er.

3/12/05 22:02

Dexxa

Mig hefur dreymt hana... hún elti mig..

3/12/05 22:02

Gottskálk grimmi

Helvítis maran legst á mig og nauðgar mér reglulega.
[Íhugar málaferli]

3/12/05 22:02

Aulinn

[Verður ringluð] Allt í lagi þá.

3/12/05 23:00

Jóakim Aðalönd

Ert þú uppspretta allra Marasagnanna sem Offari hefur sagt okkur?

3/12/05 23:01

Nætur Marran

Ég er all ólík því sem fer fram í Marasögunum.

3/12/05 23:01

ZiM

Viltu vinsamlega EKKI heimsækja mig í draumum mínum, það er loksins að ganga vel hjá mér.

P.S er myndin dulbúningur til að blekkja okkur?

4/12/05 00:00

Gaz

Iss piss. Er þetta ekki bara úgáfa af stelpu tuðrunni úr Ringu?

4/12/05 00:01

Nætur Marran

Hún er ekki með hárið fyrir andlitinu, heldur er það niður til hliðana og skyggir á andlitið, skiluru.
Ég er líkari Nætur Mörrunni í lifanda lífi heldur en á myndinni. Ég vill ekki hræða ykkur.

Nætur Marran:
  • Fæðing hér: 18/2/06 18:45
  • Síðast á ferli: 23/10/06 14:45
  • Innlegg: 38
Eðli:
Af hinu illa
Fræðasvið:
Svartigaldur, álög og voodoo
Æviágrip:
Ég hef verið til frá upphafi tímans og ekki mínútu lengur. Ég eyði mestum mínum tíma í Guam að spila refskák við blinda munka.