Nú er ZiM snúin aftur og sér á gömlum ritum sínum að mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan hún lét í sér kveða hér.
Áður en ég fór að kanna hinn stóra heim iðaði allt af lífi hér inni.
Það er gott að vera komin aftur heim. En hvar eru allir?
Er ekki búið að skrá þig í barnaskólann?
Þú ættir að vera a.m.k. í fimmta bekk.
Er Grýta ekki skólastjóri?
Velkomin ZiM. Líklega eru allir á smettisskruddunni eða jafnvel enn lengra burtu, hér eru bara fáeinir eins og ég sem aldrei hafa getað vanið sig af að kíkja hingað annað slagið.
Þúsund þakkir. Gaman að sjá ykkur.
Ég er byrjuð á afsökunarlistanum fyrir skólafjarvistir mínar. Ég reikna með eftirsetu til þrítugs.
Ímyndum okkur að Facebook sé the zombí apókalips... það leynast en nokkrar bardagahetjur í weistlandinu sem er Gestapó og þær berjast daglega hetjulegri barrátu fyrir lífi spjallborðsins... svona næstum því...
En gaman að sjá þig aftur Zim...