Ég sá víst um hið margrómaða og ferlega létta pub quiz þetta árið á árshátíðinni og tókst það nú svona misvel vegna athyglisbrests hátíðargesta. Fólk var bara í sleik og að klípa í rassa hér og þar og útum allar jarðir. Ég týndi spurningu númer fjögur og man ekkert hver hún var. Hér koma þær 19 spurningar sem voru lesnar upp. Ég er loksins búin að finna þær í brjóstahaldinu mínu. Þeir sem aðstoðuðu mig við að semja spurningarnar fá ástarþakkir og knús fyrir.
1. Hver af eftirtöldum póum er gulur.
a) Gaprildi
b) Jón Spæjó
c) Krosstré
d) Neró
Svar : a)
2. Feiti einbúinn skartar sérstökum sólgleraugum, hvaða lag er á glerjunum.
Svar: Fimmhyrnd
3. Hver er varaforseti Baggalútíu.
Svar: Regína.
4. Lenti í skrumgleypinum.
5. Hver er ráðherraráðherra Baggalútíu.
svar : Hvæsi.
6.Hvaða leikur er sá vinsælasti á lygilega vinsæla leikjasvæðinu.
Svar: 2 sexur.
7. Hvað kallar háæruverðugur Enter samkynhneigða færeyinga skv lesbókinni.
Svar: Kynvitleysinga.
8. Hvað heitir aðal kvennabósi færeyinga skv lesbók Baggalútíu.
Svar: Finnleif í Skorinni.
9. Hver á flest félagsrit á gestapóinu.
Svar: Ívar.
10.Hver á flest innlegg á gestapó.
Svar: Herbjörn Hafralóns.
11. Hver er elsti póinn skv því sem ég gróf sjálf upp.
Svar. Klobbi.
12. Hver er talinn hafa fæðst um árið e-ð óendanlegalangtbarasemekkie ?
Svar: Bauv.
13. Hvaða gestapói er verndari alls karlkyns.
Svar Tina St Sebastian.
14. Hvaða gestapói reis uppfrá dauðum þann 16.maí 1986.
Svar B Ewing.
15. Hvaða gestapói er fótrukkari.
Svar : Jarmi.
16.Er hægt að hafa mínus tölu á félagsritunum sínum.
Svar : Já.
17.Hver hefur unnið af fullkomnun sérvisku sinnar frá unga aldri.
Svar: Kargur.
18. Hver segist vera framúrsjkarandi í færeyings rannsóknum.
Svar: Tígra.
19. Hver þykist hafa vit á öllu en veit ósköp lítið um allt.
Svar: Skabbi.
Þarna er þetta loksins rétt stafsett.
Ég held að maður fái mínustölu með því að eyða öllum ritum sínum á skömmum tíma. Eitthvað svoleiðis.
Varðandi elleftu spurningu, þá var Ívar þó eilítið á undan Klobba, með auksjálf að nafni hallurg. Eigi treystum vér oss til að fallbeygja það. Eigi hefði það þó breytt úrslitunum.
Hehehe já þetta var sko leikurinn , Tína sá um sleikinn. Enda missti ég alveg af honum,
Vjer leggjum síðan til að harðbannað verði að skýra frá hvernig spurningakeppnin fór [Glottir eins og fífl].
Í ljósi þess athyglisbrests sem nefndur var væri kannski betra að hafa þetta fyrr næst svo meðaláfengisprósenta þátttakenda verði lægri.
PS Í ljósi fyrri fjelagsrita lásum vjer þetta fyrst sem Árshátíðarsleikurinn [Veltir fyrir sjer hvort sá mislestur hafi einhverja dýpri merkingu].
Hins vegar er notandi númer 1 Sammi frændi, en hann er samt með fæðingardag á eftir notendum 2 og 3 (hér að ofan): Fæðing hér: 8/8/03 09:39
Er það ekki rétt hjá mér að Enter hafi skipt um raunheimaleikara á þessu tímabili ?
Spurning fjögur lenti í skrumgleypinum Grétar minn. Kannski vegna þess ég tapaði henni.
Hey hey, síðasta spurningin var auðmisskilin. Þetta hefði alveg getað verið ég!
Nei heyrðu, scratch that, ég breytti þessu fyrir einhverju síðan. Ég veit ýmislegt og veit alveg að ég veit það.
Nevermind!
Gestapóið var formlega opnað á miðnætti áttunda ágúst 2003. Það er að segja, miðnætti þegar sá áttundi gekk í garð. Enter og hans aukasjálf teljast ekki sem "Póar".
hallurg var skráður 8/8/03 kl. 00:14. Eins og svo margir aðrir þá hafa innlegg hans tapast eftir hremmingarnar haustið 2006, svo hann er settur í flokk með þeim sem eru með 0-2 innlegg. Af einhverjum óskiljanlegum orsökum eru 0-2 innleggjafólkið ekki talið með þegar maður velur listann yfir skráningu Póanna.
Það er alveg á hreinu að þetta er fyrsti póinn.
En eins og Fergesji sagði, þá hefði það ekki breytt úrslitunum. [Glottir]
Herbert (notandi nr. 4) er varla aukasjálf Enters: Fæðing hér: 24/6/03 19:03
Jamms, hallurg er fyrstur samkvæmt mínum mælingum. O seisei. En ég man nú reyndar eftir tíma þar sem Gestapó var til en innskráning var ekki möguleg. Þá skirfaði ég marga óborganlega snilldina. Vildi bara óska að ég hefði haldið því áfram eftir að innskráningarkerfið var tekið í gagnið.
Úff.. Ég og mitt lið vorum með næstum ekkert af þessu rétt. Ekki það að ég muni eitthvað vel eftir því hverju við svöruðum, bara að það var illa skrifað. Jú eitt svarið var "mamma þín".
Snúið eigi út úr, Billi. Hexia átti að sjálfsögðu við alla ritstjórnarmeðlimi. Þeir teljast eigi venjulegir Póar.