Ég mismælti mig svona svakalega á netinu áðan og smellti com aftaná lútinn. Kemur þá ekki upp þessi líka fína síða með uppskriftum og handtöskum frá Indlandi. til að byrja með gerði ég náttúrulega ráð fyrir að hér væri á ferðinni kerskni frá ritstjórn, en hef sannfærst um upprunan.
Allavega, ég man ekki eftir að hafa dottið þarna inn áður, þrátt fyrir að setja com aftan á allan fjandann, enda haldinn svokallaðri wwwlexiu.
...þarf að þjóta í singstar, er að rústa þessu.
"Ég mismælti mig svona svakalega á netinu áðan og smellti com aftaná lútinn."
Gæti það þá hafa verið baggalutur.is.com ? [Hrökklast aftur á bak og hrasar við]
Rétt er það. Baggalutur.com var notað í fyrndinni. Ætli lénið hafi ekki verið selt eða endurúthlutað. Annars veit ég ekki hvernig þessum vefsíðunöfnum er ráðstafað.
Ég hef séð þessa síðu og í kjölfarið velt því mikið fyrir mér hvort 'baggalutur' þýði eitthvað matarkyns á indversku.
Dot com lénum er úthlutað í gegnum internetið. Hver sem er getur skráð lén sem er ekki frátekið fyrir með því að gefa upp kreditkortanúmer. Svona lén kostar einungis um tíu dollara á ári, sem er auðvitað hræódýrt. Hins vegar þarf að endurnýja lénið reglulega, því að annars missir maður það og aðrir geta hirt það. Mig grunar að baggalutur.com hafi hlotið þessi örlög.
Þetta skemmtileg síða. Ég smellti á "Masala" og þar er hægt að lesa sér til um "Tandoori Oven", Free Telugu Masala og í þriðja lagi "Sexy Girl in Beach Bikini".
Afskaplega fjölbreyttur vefur.