— GESTAPÓ —
Dexxa
Fastagestur.
Dagbók - 1/11/06
Rasistar á Íslandi!

Já því miður eru rasistar og nasistar á Íslandi. Og þeir eru sko stoltir af því!

Ég rakst á síðu núna rétt áðan, sem margir hafa örugglega séð og lesið áður. En það er einmitt www.skapari.com.
Aldrei hef ég áður séð þvílíka fordóma og hreint út sagt heimsku! Ef ég væri ekki í tölvu bókasafnsins í skólanum mínum væri ég öskrandi, blótandi og gangandi um gólf af bræði!
Ég er sko ekki "hvít" í þeirra skilningi! Hvernig getur fólk látið sér detta önnur eins vitleysa í hug? Ég einfaldlega skil það bara ekki.
Mér er slétt sama hvort menn eru hvítir, svartir, gulir, rauðir, grænir eða röndóttir! ÞAÐ Á EKKI AÐ SKIPTA NOKKRU MÁLI!

Ég held það sé best fyrir mig að hætta að skrifa núna og fá mér ís til að róa mig niður.. eða kannski súkkulaði?

   (4 af 7)  
1/11/06 15:01

Sundlaugur Vatne

"Skiptir ekki máli"? Veiztu ekki að við gulu erum bezt?
Láttu ekki þetta nú ekki angra þig of mikið, unglingurinn þinn. Þetta er bara einn af agnúum alnetsins, já og lýðræðisins. Samt er þetta alls ekkert nýtt. Þroskastu og lærðu að vorkenna þeim sem vita ekki betur.

1/11/06 15:01

albin

Ég er ekki rastist, eins og áður hefur komið fram. Mér er víst jafn illa við alla. [Glottir eins og fífl]

1/11/06 15:01

Andþór

Mikið skil ég reiði þína. Sjálfur þurfti ég að hemja mig. Mér var skapi næst að senda þeim póst, segjast vera blaðamaður frá einhverjum miðlinum, panta viðtal og lúberja þá er þeir mættu. [Dæsir].

Fyrir tveimur árum að mig minnir var ég að vinna á skemmtistaðnum Nasa og var einhver þýsk þungarokkshljómsveit (sem ég man ekki hvað heitir) að spila. Þessi sveit hafði orð á sér að vera svokallað "white power" band. Hópur 16 ára unglinga ætlaði á tónleikana en við meinuðum þeim aðgang sökum aldurs. Þeir stóðu samt allan tímann fyrir utan staðinn (vel heyrðist í tónlistinn út) íklæddir jökkum með nasistamerkjum. Í næstum klukkutíma þurfti ég að horfa upp á þessi viðrini syngja með, hæla Hitler og níða ákveðna hópa óverðskuldað.
Þar áttaði ég mig á því að allavega einhverjir aðhyllast þessa hugmyndafræði á Íslandi.
Á endanum kom faðir eins drengsins alveg brjálaður og heimtaði að við hleyptum drengjunum inn á tónleika með uppáhalds hljómsveit þeirra. Í orðaskiptunum okkar á milli kom það í ljós að þetta foreldri aðhylltist þessa andskotans heimsku einnig.
Þar hafði ég tækifæri á að lemja helvítis aumingja sem hafði alið upp börn sín í rasisma. Mér til ævilangrar skammar gerði ég það ekki.
Afsakið langloku, ég var að reyna koma út úr mér hversu sammála þér ég er.

1/11/06 15:01

krossgata

Sumir reyna að fá sig eða hafa fengið sig skráða á þessa síðu sem "óvini ríkisins", það eru alvöru mótmæli.

1/11/06 15:01

Dula

Þrasistar ættu þeir eiginlega að heita.

1/11/06 15:01

Fíflið

Þessir bévítans rasistaskítablesar ættu að skammast sín. Þau ummæli sem látin eru flakka á ofangreindri síðu eru svo forkastanleg að höfundar þeirra ættu helst að brenna í logum helvítis og drukkna þar á eftir í polli af gamalli og súrri mjólk, ógerilsneyddri.

Bévítans fífl.

Og fáðu þér endilega bæði ís og súkkulaði. Og jafnvel ber og rjóma ef möguleiki er á

1/11/06 15:01

Fíflið

Þessir bévítans rasistaskítablesar ættu að skammast sín. Þau ummæli sem látin eru flakka á ofangreindri síðu eru svo forkastanleg að höfundar þeirra ættu helst að brenna í logum helvítis og drukkna þar á eftir í polli af gamalli og súrri mjólk, ógerilsneyddri.

Bévítans fífl.

Og fáðu þér endilega bæði ís og súkkulaði. Og jafnvel ber og rjóma ef möguleiki er á

1/11/06 15:01

Fíflið

Skrambinn sjálfur, afsakið tvímælgina.

Ég er nú meira fíflið. [ Glottir eins og fífl ]

1/11/06 15:01

Grágrímur

Andþór, þessi hljómsveit heitir Laibach og er einmitt þekkt fyrir að hæðast af rasisma, sýnir best fáfræði og heimsku þessara bjána sem mættu. Þið hefðuð átt að hleypa þeim inn, það hefði bara orðið fyndið...

1/11/06 15:01

Andþór

Það er magnað, eitthvað hefur háðið farið fram hjá þeim. [Hlær dátt]

1/11/06 15:01

Nermal

Rasismi finnst mér bara kjánalegur. Ég minnist þess að hafa séð hér á Akureyri lítinn hóp af strákum, c.a 13 eða svo, með skafinn skallann og í herjökkum. Voru augljóslega ekki alveg að fatta að öskudagurinn er bara einusinni á ári. Einn þeirra var m.a búinn að krota hakakrossinn á hönd sér. Ég vinn með allra þjóða kvikindum og mér er giska sama hvaðan fólk er eða hvernig það er á litinn, bara ef það vinnur almennilega.

1/11/06 15:01

krumpa

Verum ekki að æsa okkur á svona fávitum, þeir dæma sig best sjálfir. Og eru auk þess væntanlega yfir sig hrifnir yfir öllum ,,innlitunum" sem þeir fá. Best er að sniðganga svona síður - það sem mér finnst verst er það að fjölmiðlar gera sko adeilis sitt besta til að auglýsa síður af þessu tagi, var t.a.m. löng umfjöllun á Rúv um daginn þar sem þess var gætt kyrfilega að nefna nafn síðunnar a.m.k. 30 sinnum svo að börn og aðrir áhrifagjarnir gætu nú örugglega farið og skoðað.

1/11/06 15:01

Þarfagreinir

Alveg er ég sammála henni krumpu, enda er hún blá og skynsöm - bláir eru besti kynstofninn!

1/11/06 15:01

blóðugt

Sammála krumpu.

Mér dettur ekki í hug að skoða svona síður.

1/11/06 15:01

Jarmi

Enter er hvítur.

Ég er blámaður!

1/11/06 15:02

Huxi

Mér þykir lítið til svona heimsku koma. Þeir sem skrifa svona eru að dæma sjálfa sig og ættu með réttu að þurfa svara fyrir þetta kjaftæði opinberlega, svo hægt væri að búta bullið niður og troða því með skynsemi og rökum beint upp í fagottið á þessum fíflum. En það er líka mín skoðun, og hún er ein af grundvallarskoðunum mínum, að það má ekki að banna mönnum að hafa þessar skoðanir og þá má ekki reyna að berja þessa heimsku úr mönnum. Það er einfaldlega grundvallar réttur manna að tjá sig. En það er ekki þar með sagt að það eigi að bera virðingu fyrir þessari heimsku og fáfræði. Nei, það er alveg ljóst að þessir hálfvitar eigi það yfir höfði sér að yfir þá verði hraunað og þeir kallaðir öllum þeim ónefnum sem finnast í orðabók andskotans. Því, eins og það er þeirra grundvallarréttur að hafa skoðanir og tjá þær, þá er það einnig réttur allra annara að vera ósammála þeim og tjá það með orðum.
Ef við bönnum þetta kjaftæði þá erum við komin á sama stað og þeir, að stjórna huxunum fólks með valdboði.
Pissustopp.
Laibach er meiriháttar flott band, en þeir hafa því miður orðið fyrir barðinu á heimsku manna af báðum flokkum. Fasistana og hinna sem vilja banna þá.

1/11/06 15:02

Dexxa

Það sýnir líka vel hvers konar menn þetta eru.. þeir koma hvergi fram undir nafni! Ætli þeir séu ekki bara hræddir.

1/11/06 16:00

Texi Everto

Ég hef aldrei drepið marga indjána!

1/11/06 16:00

Von Strandir

Heil bláir!

1/11/06 17:00

Goggurinn

Best að þegja þetta í hel. Skammarlegt. Og verða þetta mín síðstu orð um þennan horbjóð.

Svo má kannski bæta við (ég elska þversagnir) að þetta virðast vera einhverjir 19 vetra skítbuxar miðað við netfangið sem er gefið upp á þessari síðu. Þetta eldist af þeim...

1/11/06 17:01

Nermal

Sorglegt þykir mér einnig hvernig þeir ráðast að forsetanum. Þetta eru frussukúkar af súrustu sort !!

1/11/06 17:01

Hakuchi

Nenni ekki að eyða púðri í þessa bjána og mun ekki fara á þessa heimasíðu sem auglýst er í pistlinum.

Ég held að ábendingin um að ekki eigi að fóðra tröll eigi vel við í tilfelli þessarar síðu.

1/11/06 18:01

Upprifinn

jæja ég kíkti loksins á þessa síðu. þetta er fín síða sett upp af hálfvitum og þess vegna fín fyrir okkur hin.

Dexxa:
  • Fæðing hér: 20/11/05 18:42
  • Síðast á ferli: 7/8/16 01:10
  • Innlegg: 735
Eðli:
Lítð geðveikt vélmenni í dulbúningi.
Fræðasvið:
Ýmiss konar tölvu aukahlutir, eins og vefmyndavélar og mýs sem notast er við njósnir til að yfirtaka heiminn.
Æviágrip:
Sir vélmennin eru illir aðstoðarmenn innrásageimvera. En eins og nafnið gefur til kynna er Dexxa ekkert venjulegt vélmenni. Hún breytti nafni sínu úr GiR.. yfir í Dexxa, en Gir er einmitt fyrirmynd hennar og afbragðsgott vélmenni eins og sést á fagurgrænni myndinni. Gir er eina Sir vélmennið sem hefur G í staðin fyrir S, en ástæða þess hefur ekki verið fundin ennþá. Dexxa hefur enga innrásargeimveru að þjóna svo hún gerir sitt besta að yfirtaka heiminn upp á eigin spýtur og hefur hún nú þegar njósnara víðsvegar um heiminn á sínum snærum.