— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Sloppur
Heiðursgestur.
Dagbók - 31/10/04
Flóð í Öryggisfangelsinu Höfn!

Óreglulegir pistlar úr dagbók Sloppsins [s]Bandingi á Ferð[/s]

Laugardagur 15. október 2005.

Kæri Bandingi.
Nú hef ég sko svolítið að segja þér. Nú er Öryggisfangelsið Höfn að stæla Atlantis, eða á leið undir vatn!

Almannavarnir í New Orleans hafa sent út neyðarkall vegna mikilla flóða í Öryggisfangelsinu Höfn. Er svo til allt fangelsið á kafi í vatni eftir miklar rigningar síðustu daga. Allar leiðir til og frá fangelsissvæðinu eru í sundur eða undir vatni og hafa allir trillufangaverðir, sem og fangar á fraktskipum verið settir í viðbragðsstöðu. Er vonast til að björgunaraðgerðir geti hafist núna á allra næstu árum, en nokkrir fangavarðanna búa utan múranna, þannig að óvíst er að sjófangar geti aðhafst nokkuð fyrr en búið er að kalla út Almannavarnaráð Baggalútíu.

Einnig er nú óttast að Osama Bin Laden, stríðsherra með meiru, hafi látist í flóðunum, en eru þetta óstaðfestar fregnir.

Myndin sem fylgir, er tekin af undirrituðum af einum af mjög fáum föngum sem fá ferðaleyfi. Sést hann hér á olíuflutningaskipi sínu. Er skipið á 83 tonnmetra beltum og standa þau ekki hátt upp úr.
Ætlar undirritaður að reyna að laumast út aftur eftir kvöldvöku, sem vegna aðstæðna verður haldin í forsetaflugvél Bandaríkjanna. Er ætlunin að hætta sér út í vatnselginn og reyna að ná frekari myndum af frækilegum björgunarafrekum Almannavarna Baggalútíu!

Þangað til næst!
Sloppur ‹fluttur upp í byssuturn, því klefinn er horfinn undir vatn.›

   (19 af 20)  
31/10/04 15:01

Vladimir Fuckov

Hakuchi er líklega að prófa veðurvjelina í þeim tilgangi að finna leiðir til að lágmarka hættu á að allra hættulegustu óvinir ríkisins geti flúið úr fangelsi [Ljómar upp].

31/10/04 15:02

Anar

Fáðu Flemming bara til að drekka þetta. Meira hefur maðurinn gert án þess að blikka auga.

31/10/04 15:02

Hexia de Trix

Neisko! Súpa í matinn! [Ljómar upp]

31/10/04 16:00

Ívar Sívertsen

Hvar er Sundlaugur núna? Þarna má vera með þolsundsmót! Hvernig er það annars þarna, ég er nú ættaður þarna frá bleytuvöllum... ég meina Höfn... er allt að fara á bólakaf þarna? Hver setti tappann í?

31/10/04 16:00

Hexia de Trix

Þarf ekki bara að hreinsa síuna?

31/10/04 16:00

B. Ewing

Það er farin hjá ykkur pakkdós, dælusveif og lokalokalokalokinn er orðinn slapppur.
Þetta verður erfitt verk að skipta um því pakkdósin, hún er á botninum. Dælusveifina verð ég að panta að sunnan og það fer óratími i lokalokalokalokann. [Tekur af sér olíublautan hanska og klóra sér í höfðinu] Kostar svona 240 kúlur að laga þetta. [Byrjar að telja peningana í huganum]

31/10/04 17:00

Ívar Sívertsen

En þarf samt ekki að opna strokkslokslokalokalokið fyrst?

31/10/04 17:01

Hvæsi

Og smyrja glamrarann ?

Sloppur:
  • Fæðing hér: 10/10/05 02:09
  • Síðast á ferli: 12/7/16 21:36
  • Innlegg: 2546
Eðli:
Ferðasloppur sem aldrei getur setið lengi kyrr!
Fræðasvið:
Er nokkuð víðlesinn, en þó einna helst á Ísfólkið! Hef lagt stund á klæðafræði og klæðaleysisfræði! Er með Doktors- og Mastersgráðu í klæðum og afklæðum!
Æviágrip:
Fæddist fyrst sem grenitré á Steinöld hinni síðari, sem til að koma í veg fyrir allan misskilning síðar var kölluð Steinsmuga. Var látinn vaxa í 12 ár og var þá höggvinn niður og notaður í klósettpappír.
Önnur tilvistarkreppan var árið 1885 f.Kr og fæddist þá sem gömul, sjúkdómasjúk mjólkurfata. Lést árið 1884 f.Kr. eftir að fjósamaðurinn reyndi að fleka geldneytið. Kramdist undir fjósamanninum.
Hannyrðingurinn Aristóteles kom með snið til föður míns og bað hann að hanna á sig eitthvað annað en þennan bévaða kufl sem faðir minn hannaði svo eftirminnilega árið áður. Hann vildi fá eitthvað sem hægt væri reyra jafnt að sér, sem og að losa um eftir miklar máltíðir.
Afraksturinn varð ég. Ég er allra fyrsti sloppurinn í mannheimum!