Ýmislegt er á sig lagt þegar blóðið rennur manni til skyldunnar.
Nokkra síðustu daga hef ég stundað það aukreitis að líta eftir barni frænda míns meðan hann er í fríi í Sameinuðum Fylkjum [Norður-] Ameríku. Ég hef svosem ekki yfir miklu að kvarta enda ekki nema sjálfsagt að hlaupa undir bagga með ættingjum sínum þegar svo stendur á. Þar sem þetta barn hefur afar mikla hreyfiþörf þessar klukkustundir sem það vakir, þá ákvað ég í gærkvöldi að koma því fyrir uppi á skrifborðinu mínu svo það gæti hlaupið þar um undir eftirliti á meðan ég sæti við tölvuvinnu. Nú er þetta barn hamstur að DNA-uppbyggingu og því afar smátt í sniðum. Eins og gefur að skilja er þetta barn ekki blóðskylt okkur hinum í fjölskyldunni, heldur ættleitt fyrir milligöngu manna hér í bæ. En sökum smæðar sinnar átti þetta barn einstaklega auðvelt með að smeygja sér á milli hluta og blaðabunka á áðurnefndri vinnuaðstöðu minni. Ég viðurkenni það fúslega að margt mætti betur fara í skipulagi þessa borðs, enda langt í frá þar sé allt uppraðað í hornrétta stafla, en eftir að kvikindið hafði týnzt tvisvar sinnum og leitin að því valdið töluverðum tilfæringum og vandræðum var mér nóg boðið og flutti það snarlega aftur í búrið sitt. Það er sem ég segi; börn eru best geymd í búrum. Að minnsta kosti þau sem eiga það til að týnast.
Mér líst nú ekki nógu vel á þetta... Veit frændinn hvað stendur síðast í æviágripinu þínu? [Blímskakkar augunum á gregory]
Ó hvað ég finn til með þér Gregory. Ég var sjálf í þessari aðstöðu um daginn, nema hvað að 'mín' börn voru mennsk og því ekki í boði að smella þeim í búr á erfiðum augnablikum.
Ef barnið er laumupúki er það líklega óskilgetið afkvæmi Vladimirs [Ljómar upp]
Já, barneignir eru svo sannarlega ,,Inni" á Lútnum í dag... til lukku Vladimir!
Er barnalán og barnarán ekki skyld fyrirbrygði? Ef þú rænir barni ertu að fá það "lánað" = Barnalán
Það var reyndar meiningin með fyrirsögninni; þetta barn var einmitt í láni.