Forsætisráðherra Íran tók sér stutt hlé frá andísraelskum kaffiborðsumræðum(í öðrum löndum heitir sá atburður samtal) stjórnarinnar í gær til þess að tilkynna að samþykkt hefði verið tillaga þess efnis að landið heiti héðan í frá Úran. Úranar vonast með þessu til að aðrar þjóðir heims muni hætta öllum afskiptum af kjarnorkustefnu landsins eða "troði sokk í´ða" eins forsætisráðherran orðaði það. Í framhaldinu hyggjast þeir sækja um einkaleyfi fyrir auðgun úrans á svipuðum grundvelli og Grikkir hafa nú einkaleyfi á Feta-osti og loðnu baki.
Stjórn Írlands sendi Úrönum stuðningsyfirlýsingu í gær og tilkynnti jafnframt að í kjölfarið væri þegar búið að samþykkja tillögu um að breyta nafni sínu í Úrland með öllum atkvæðum neðri deilda þingsins. Ekki náðist í forsætisráðherra landsins sökum tímaskekkju.
Ég hef sjaldan eða aldrei hlegið jafn mikið yfir nokkru félaxriti. Hafðu þökk fyrir það Geöff!
Úsland? hvaða endemis þvaður er þetta í þér Þarfi, ég held að þú þurfir að fara í blóðskilun. Það kemur ekkert annað til greina en ...BAGGALÚTÍA.
Góður, Geoff. Kitlar hláturtaugarnar.
Minnir mig á gamalt félagsrit um úranauðganir. Það er hrottafengið að nauðga úrum.
Þakka ykkur fyrir þessi orð. Þess má geta að þegar tillaga þessi var borin fyrir íslenzka þingið þá sigu augabrúnir Halldórs niður fyrir hné. Því er ekki að vænta breytinga hérlendis.