Svífur upp í sjö himna
situr oft og hugsar
þá bofs vill ekki Búdda vinna
en bændur eins og uxar
Hlógu dátt og hross átu
hófu gálga að reisa
og Kristi lögðu krossgátu
sem kunni ekki að leysa
Hindúarnir hvítt á svart
halda að þeim sé rétt
að þurfalinga þræla hart
því þeir séu lægri stétt
Byggja nýja betri borg
með baráttu- mikinn anda
grafa saman gamla sorg
gyðingar allra landa
Islam veit ég engin skil
annað en ég man
sem sanntrúaður svelta vil
á sjálfri Rhamadan
Hvort á helgu landi búi
eð´í helvíti fái pínu
öllu sem og engu trúi
innst í hjarta mínu
Lærði-Geöff