Aldrei skal ég svo lengi fjarverandi vera af stjörnunni í einni lotu.
Mikil lifandi skelfing er ég búinn að vera lengi í burtu. Hvernig er hægt að lifa svona lengi á súrefnisins sem einungis er hægt að draga ofaní lungun hér í Baggalútíu. Heill mánuður og aldrei litið inn hvað þá lagt eitt einasta orð í belg og þá kem ég sennilega að merg málsins, eða að leggja eitthvað í belg.
Það er búið að vera óheyrilega mikið um veislur í stórfjölskyldunni undanfarið svo belgmál hefur aukist mjög í ummáls sentimetrum en ritmál minkað í dálksentimetrum (sennilega kvarta fáir yfir því).
Kannast einhver af hlustendum við orðið belgmál eða hafa verið í líkum sporum undanfarið !?
Auðvitað er alltaf gaman að hitta fólkið sitt og sinna í fermingarveislum, tvítugsafmæli, fimmtugsafmæli, gullbrúðkaupsveislu, stútentaveislu, erfidrykkjum og giftingarveislum en nú er vonandi þessari vorvertíð lokið enda vetur tekin við og nú er tími til að glugga eitthvað í ritin og sjá hvaða málum þið hafið verið að fitja uppá eða drepa á dreyf þessa ljúfu veisludaga.
Kuldaboli hvín á glugga
kastar pilsaföldum til.
Góða hlýju mér hún Gugga
gaf af sínum barma yl
Ég myndi hafa þetta svona, svo að það standist brag:
Kuldaboli hvín á glugga,
kastar pilsaföldum til.
Hlýju mér hún góða Gugga,
gaf af sínum barma yl.