— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Begónía
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Dagbók - 6/12/04
Nýliðakveðja

Sælt veri fólkið.
Ætla rétt að kasta kveðju á meðlimi Bagglúts. Í gær skoðaði ég vefinn í fyrsta skipti og ég stóðst ekki mátið og skráði mig inn.
Ekki er komist hjá því að taka eftir sérkennilegum og stundum nokkuð frumulegum nöfnum hinna ýmsu meðlima og getur nýjasti meðlimurinn ekki látið sitt eftir liggja í þeim efnum, eða hvað?

Að lokum,
Ég verð að segja að hér er einstaklega skemmtilegur vefur á ferð og vænti ég þess að kynnin verði bæði góð og nærandi.

   (1 af 1)  
6/12/04 01:00

Órækja

Ég vona á móti að okkar kynni af þér verði góð og nærandi. Velkomin(n) í hús Begónía.

6/12/04 01:00

Vamban

Komdu fagnandi! Skál!

6/12/04 01:00

Bölverkur

Frábær byrjun hjá þér, fæð 7.5 af 10 mögulegum.

6/12/04 01:00

Furðuvera

Velkomin, velkomin.

6/12/04 01:01

Texi Everto

Jííha! [Plaffar nokkrum Skotum upp í loftið til að fagna]
Passaðu þig bara á því að fá ekki Skota í hausinn, þeir eiga það til að falla úr heiðskýru lofti helvískir.

6/12/04 01:01

Júlía

Velkomin. Fallegt og frumlegt nafn sem þú valdir þér, ég bíð spennt eftir myndinni.

6/12/04 01:01

Hakuchi

Kom þú sæl og blessuð.

6/12/04 01:01

Sæmi Fróði

Sæl og blessuð!

6/12/04 01:01

Begónía

Vá! Ég þakka góðar móttökur [brosir út að eyrum]

6/12/04 01:02

Limbri

Velkomin. Frábært að sjá þig.

Ég myndi endilega vilja vita hver heitir frumulegu nafni.

-

6/12/04 02:02

Begónía

Æ, þetta var bara kurteisishjal...
Annars er Limbri nokkuð frumlegt [mjög hugsi... hvað þýðir Limbri?]

6/12/04 02:02

Ísdrottningin

Limbri meinti að það er einu u ofaukið í orðinu frum u legur í textanum þínum.
Velkomin annars...

6/12/04 02:02

Begónía

Úps [aumingjahrollur] gleymi ekki að setja upp gleraugun hér eftir.
Jæja, kominn tími á popp og kók, þær aðþrengdu kalla.

Begónía:
  • Fæðing hér: 31/5/05 23:11
  • Síðast á ferli: 2/6/05 22:41
  • Innlegg: 0