Eitt af þessum skemmtilegu félagsritum sem fær fólk til að segja: „Já, þarna hittirðu sko naglann á höfuðið“, eða: „Hey, akkúrat það sem að ég var að hugsa, en ég bara vissi það ekki fyrr en núna!“ Jahá, þetta er sko eitt af þessum skemmtilegu félagsritum!
Það eru til tvær tegundir af fólki í heiminum, fífl og fávitar.
Fávitar eru fífl af því að þeir vita ekki betur, en fíflin eru fávitar af því bara.
Fávitarnir hafa alltaf verið fleiri heldur en fíflin. En þar sem að fávitarnir vita svo fátt þá hefur fíflunum alltaf tekist að fífla fávitana svo mikið að fávitarnir eru sífellt gerðir að fíflum.
En stundum neita fávitarnir að vera fífl, og þá gera fávitarnir atlögu að fíflunum. Fávitarnir vilja nefnilega fá að vita það sem fíflin vita, en þá þykjast fíflin vera fávitar: „Við vitum svo fátt“, segja fíflin.
Og þar sem fávitarnir vita ekki betur, þá eru fávitarnir enn og aftur gerðir að fíflum.
Hvort ert þú fífl eða fáviti? _______________________
Hey, akkúrat það sem að ég var að hugsa, en ég bara vissi það ekki fyrr en núna!
Það er þó gott að fá það staðfest að Don De Vito er annað hvort fífl eða fáviti. Það þarf svosem ekkert að þrengja hringinn neitt frekar. Við höfum lengi vitað að svona er í pottinn búið.
Eftir að hafa rennt í flýti gegnum þetta fjelagsrit áttum vjer oss alls ekki á hvort vjer erum fífl eða fáviti. Er það ótvíræð sönnun þess að vjer sjeum annað af þessu tvennu ? [Klórar sjer í höfðinu]
Þessu höfum við Köngulóaraparnir alltaf haldið fram, en fíflin í fávitaskap sínum ekki viljað trúa.
Mér finnst algjör óþarfi að þú sért að draga gáfnafar þitt og vina þinna hingað inn á Gestapó. En það er svosem ekki við öðru að búast af svona fífli eins og þér, fávitinn þinn.
Orðið fíflviti er mergjað. Finn endalaus not fyrir það í þeirri pólítísku umþvælu sem hæst ber á Djöflaeynni. (ju)
Það tilkynnist hjer með opinberlega að í tilefni af því að í dag er hátíðardagur laumupúka höfum vjer ákveðið að stofna hjer nýjan laumupúkaþráð. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Síðast þegar jeg skrifaði eitthvað svona var brugðist við eins og að menn ætluðu að gera árás á Baggalútíu með kjarnorkusprengju , efna - eða sýklavopni. Svo jeg hafði vit á að fjarlægja innleggið hið snarasta.
Hvort er jeg fífl eða fáviti? Hvað ef jeg tjái yður vinsamelga og kurteisislega að jeg vilji halda þeirri skoðun minni hvort jeg sje bæði eða hvoru tveggja fyrir sjálfann mig???
13.08.18
Eftir um það bil 9 ára þögn þá segi ég þennan laumupúkaþráð aftur settan.