Ljóst er að sú efnahagkreppa sem er að ganga af heiminum dauðum teigir anga sína víða. Já, meira að segja til Baggalútíu. Mér er til að mynda engan veginn að takast að láta enda ná saman. Bókhald De Vito samsteypunnar er sem hér segir:
Innflytjendahliðið er engan veginn að standa undir sér. Tunnuverðið af tjöru er alltaf að hækka og fiðrið sem við höfum verið að reita af Jóakim er alltaf að verða sjaldgæfara með tilheyrandi hækkun á verðinu. Innflytjendastraumur til Baggalútíu hefur líka minnkað þónokkuð með þeim afleiðingum að mútur og önnur gjöld sem fara yfirleitt beint til Innflytjendamálaráðuneytisins hafa mestmegnis lagst af.
Hátæknisjúkrahúsið sem ég var settur forstjóri yfir er líka í vondum málum. Verkfall ljósmæðra hefur sett stórt strik í reikninginn og geðdeildin er að fyllast. Röntgenmyndavélin sem fest var kaup á var líka rándýr og prentarinn er bilaður svo að við höfum þurft að senda allar myndirnar í framköllun hjá Hans Petersen með tilheyrandi útgjöldum.
Hjá DeVítisvélum ehf. er allt stopp. Eftir góða byrjun þar sem allt rauk út eins og heitar lummur er eins og eftirspurnin hafi skyndilega horfið og ég sit uppi með fullan bílskúr af dómsdagstólum, vítisvélum og pyntingarmaskínum ýmis konar.
Baggaís er í bullandi mínus. Þrátt fyrir að salan hafi haldist í ágætis jafnvægi þá er leigan bara svo assgoti há og vinnuþrælarnir í verksmiðjunni heimta tannlæknatryggingu. Ég hef reynt mitt besta til að berja þá til hlýðni og segja þeim að hætta að stelast í ísinn en það tekst brösulega, enda fullt af ávanabindandi efnum í ísnum...
Hringleikahúsið hefur staðið autt í rúmlega tvö ár. Engir atburðir hafa verið haldnir þannig að miðasala á leikvanginn er engin. Leigan er hærri en World Trade Center árið 2000 og peningarnir sem fóru í framkvæmdirnar hafa aldrei komið til baka. Leikvangurinn sjálfur er svo í algerri niðurnýslu. Mosi er farinn að vaxa á milli sætanna og mörgæsir eru farnar að setjast að í C-stúku, þannig að það myndi kosta morðfjár að koma vanginum í stand ef atburður yrði haldinn.
Glímufjelagið Nærsveitarmenn hefur alltaf verið fjelagasamtök með engin gróðamarkmið en þátttaka í fjelaginu hefur aldrei verið minni og lítið sem ekkert hefur komið í kassann fyrir þetta glímutímabil þannig að nú þarf ég að borga með fjelaginu. Auk þess hef ég líka eytt gífurlegum fjármunum í landslið Baggalútíu í fótbolta vegna prímadonnuhátts aðalstjarna liðsins sem heimta alltof há laun. Liðið hefur ekki ennþá komist á stórmót og sem þjálfari, fyrirliði og eigandi liðsins ber ég kannski svolitla ábyrgð og er ég alvarlega að íhuga að yfirgefa það fyrir fullt og allt.
En það sem setti naglann í líkkistu De Vito samsteypunnar eru sennilega nýleg kaup hennar á Batman-vörumerkinu auk þess sem hryðjuverkaárás Grágríms á RISASTÓRA SJÓNVARPIÐ! sem ég fékk sent frá Japan hafði í för með sér gífurlega mikið efnahagslegt tjón. Skuldir samsteypunnar nema núna rúmlega fimmhundruðþúsund billjón skrilljón Megaböggum sinnum pí í öðru veldi og ljóst er að ef ekkert verður að gert gæti þetta gjaldþrot leitt af sér keðjuverkun sem gæti endað með allsherjargjaldþroti Baggalútíska heimsveldisins og sett samfélagið aftur á steinöld.
Það er alldrei skortur á viðskiptavinum hjá ÁTVB... þrátt fyrir krepputal...
Þetta er alvarlegra en maður heldur í fyrstu.
Ég tel ekki rétt af Jarma Billa Og Tigru að slá á létta strengi með þetta mál.
Vissulega er þetta fjarvera Dúdda sem á stóran part í lélegu gengi fyrirtækja hans, maður verður jú að mæta í vinnuna, og sumt má missa sig en annað ekki.
Við getum tildæmis ekki lokað innflytjendahliðinu... við sáum öll hvernig fór í "Raunheimum" þegar opnað var á austur evrópu.
Og Baggaís er eitthvað sem má ekki loka því ég setti smá pening í það sjálfur.
Þetta tilboð var rausnarlegt og sett fram í fúlustu alvöru. <Hækkar tilboðið um eina dós af útrunnu pestói>
Fyrir utan það að ég tek ekki ilboðinu þá myndi Innflytjendahliðið aldrei fylgja með þar sem það er ríkisrekin stofnun. En afkoma þess er samt nátengd samsteypunni.
Hefur ekki allt vaðið uppi af nýliðum undanfarið, sem á eftir að innheimta af viðeigandi sanngjörn gjöld? Gæti ekki hjálpað að hefja innheimtu á þeim?
Það verður að steypa þessum spilltu ráðamönnum af stóli og koma almennilegum mönnum að!
Ekki seinna en núna!
Já! Rétt hjá þeim gamla!
Og þegar þessir almennilegu eru orðnir gamlir og spilltir líka þá gerum við aðra byltingu...
Ég var ekkert að grínast með þetta! Ef enginn gefur röntgenmyndavélinni að éta fer ég í hart og sendi á þig bardagamörgæsir Andþórs klyfjaðar með eyðublöðum sem þarf að fylla út um slæma meðferð á dýri!
[Bendir Tigru á að mörgæsir Andþórs virðast ekkert ætla að yfirgefa stúku C í Hringleikahúsinu]
Það er mjög einfalt mál að leysa þetta vandamál. Þegar í stað þarf að hækka gengi baggalútíska gjaldmiðilsins stórlega, t.d. gera með því að tilkynna að brátt hefjist lang stærstu framkvæmdir í sögu Baggalútíu. Þá getið þjer keypt erlendan gjaldeyri fyrir skuldunum fyrir nánast ekki neitt. Strax að því loknu kolfellur að sjálfsögðu gengi baggalútíska gjaldmiðilsins sökum gríðarlegs framboðs er á honum verður sökum kaupa yðar á erlendum gjaldeyri. Samhliða því gengisfalli mun Seðlabanki Baggalútíu koma af stað sögusögnum um brjálæðislegan viðskiptahalla baggalútíska heimsveldisins, yfirvofandi gjaldþrot stærsta skipafjelags Baggalútíu og að hætt hafi verið við fyrrnefndar risaframkvæmdir. Við það fellur gengi baggalútíska gjaldmiðilsins enn meira. Þá getið þjer selt erlenda gjaldmiðilinn með stórgróða og greitt allar skuldirnar og gott betur [Ljómar upp].
Látum bara almenning kaupa draslið eins og það leggur sig og seljum það aftur á tombóluprís.
Til dæmis 25 opinberar stjörnusambandsstöðvar, 1500 kjarnorkuver, 75 tónlistarhús, stækka forseta-, konungs- og keisarahallirnar tífalt, 100 flugmóðurskip og 2500 metra háan skýjakljúf með 500 metra háum kirkjuturni efst.
[Fer í peningatankinn og leggur stórfé í fyrirhugaðar framkvæmdir ríkisins]
Fæ ég ekki öll útboðsverk Vlad?
[Laumar ótrúlega miklu magni af kóbalti og ákavíti með stórfénu og sendir rakleitt til Forsetahallarinnar]
Ég óska eftir fjárveitingu til að byggja nýtt Sívertsensetur! Það verður 8000 fermetrar að flatarmáli, átta hæðir. Einnig óska ég eftir fjármagni til rekstrar setursins og bílaflotans sem telur þrjá bíla á mann þegar hart er í ári.
8000 fermetrar er allt, allt of lítið. Vjer mælum með minnst 100.000 fermetrum og helst meira og samþykkjum eigi beiðni um neitt minna enda þarf að fara út í sem allra stærstar framkvæmdir.
Jáen.... Vlaaaad! Hvernig á ég eiginlega að finna hann Íbba í svona stórri höll?
Einfaldast er að láta 92.000 fermetra af 100.000 standa auða ef þjer viljið 8000 fermetra höll. Aðalatriðið svo efnahagsaðgerðirnar virki sem best er að hafa höllina sem allra stærsta. Til hvers einstakir hlutar hennar verða notaðir er aukaatriði.
Þjer fáið öll útboðin sjeu tilboð yðar nógu há. Það er eins og fram hefur komið mjög mikilvægt að framkvæmdirnar sjeu sem allra dýrastar [Tekur með leynd á móti miklu magni kóbalts og ákavítis].
1% tilboðsupphæðar þurfa þó að renna í sjerstakan styrktarsjóð sem vjer höfum stofnað [Ljómar upp og undirbýr stórinnkaup á kóbalti, plútóníum og gjöreyðingarvopnum].
[Gerir ráðstafanir til að bjóða Jóakim 92.000 fermetra í ókeypis leigu undir gull, svo Íbbi fari sér ekki að voða í öllum aukaherbergjunum í stóru höllinni]