Revenge of the Radioactive Reporter
Háklassasöguþráður (lesið titilinn á myndinni og getið ykkur til um hvað myndin fjallar), verstu (en jafnframt einhverjir fyndnustu) leikarar í heimi, vandræðalegar klippingar og myndatökur á köflum, drepfyndnar tæknibrellur, hellingur af smellhitnum „one-linerum“, þaulúthugsaðir dauðdagar, illa gerður Freddy Krueger- búningur aðalsöguhetjunnar, besta kvikmyndatónlist sem heimurinn hefur litið, illkvittnir stjórnarformenn kjarnorkuversins, atriðið á þakinu og bróðir geislavirka fréttamannsins (sem leikur stórt hlutverk á þakinu) gera þessa mynd að einhverri bestu kvikmyndaupplifun sem ég hef komist í tæri við.
Fimm stjörnur!
Eitthvað hafa þeir nú sparað í búningadeildinni - hatturinn er klárlega fenginn að láni af Indjána Jóns.