Hættur! <br /> Allstaðar!
Ég er að segja ykkur það! Það eru hættur allstaðar!
Um daginn lenti ég t.d. í því að gömul kerling keyrði á mig með innkaupakerru! Ég var í makindum mínum að nýta mér forgangsréttinn sem ég hef yfir annað fólk í samfélaginu og fór á undan henni í röðina í Bónus. OG þá varð nú aldeilis uppi á henni typpið! Hún reifst og skammaðist og hótaði öllu illu á meðan ég í rólegheitunum reyndi að skýra fyrir henni að ég væri einfaldlega yfir hana hafinn, en hún vildi ekki hlusta. Að lokum varð hún síðan svo fokill að hún ýtti innkaupakerrunni á mig með tilheyrandi skemmdun náttúrulega á körfunni...
Varla þarf að taka það fram að ekki þurfa skattborgarar lengur að borga eftirlaun til þessarar herfu!
[ Fær sér brynvörn til að setja á innkaupakerrur, og laumar kylfu í töskuna sína ]. Þú skalt sko ekki troðast fram fyrir mig!
Henni var nær! Að sjálfsögðu á fólk að þekkja sinn stað og vera ekki að abbast upp á jafn mikil mikilmenni og Doninn.
[Grafalvarleg]
Hún hefur greinilega verið hann og fundist þú aðlaðandi, m.t.t. typpisins þarna.
[Springur laumulega úr hlátri]
Ég var að vona að þú værir hættur þessari leti og farinn að sinna innflytjendahliðinu !!!
En ein spurning, hvað er maður af þinni merkilegheita gráðu, að gera í bónus ?
Eflaust hefur hann verið að kanna hvort óvini ríkisins sje þar að finna.
Þetta Innflytjendahlið er náttúrulega í bullandi mínus, starfsemin er engan veginn að borga sig og ég hef ekki komist í feitt stríð lengi lengi og engan veginn getað látið enda ná saman.