Þetta dreymdi mig. Í alvöru! <br /> Og þetta hefur verið að ásækja mig síðan, við erum sko að tala um ár! Hafði mikil áhrif á æsku mína og ég hef ekki getað horft á ákveðnar þáttaraðir síðan.
Ég vakna með andfælum. Mig hafði dreymt hræðilegan draum, martröð. Ég var staddur dýflissu í helli við sjóinn, myrkur umlykur hana og sé ekki neitt. Það hefur verið bundið um augun á mér. Hvað er að gerast? Er þetta dómsdagur? Ninja-skjaldbökurnar alræmdu hafa bundið mig fastan við staur. Það á að drekkja mér! Þetta er aldagömul aðferð, láta flóðið flæða inn og kaffæra mér. Nístingskalt vatnið umlykur hörund mitt og ég finn að ég er að drukkna. „Hjálp, ég er of ungur til að deyja!“ Skjaldbökurnar hlæja bara.
Ég vakna með andfælum. Sem betur fer var þetta bara draumur.
Ég fer fram á gang. Myrkrið umlykur allt. Hvað ef það er skrímsli í einu horninu?! Ég flýti mér fram í eldhús og opna ísskápinn. „ARRRGGGG!!!“ Engin mjólk til! Ég neyðist til þess að fá mér brauðsneið.
Legg til að þú setjist niður og horfir að allar þrjár mydnirnar með karate skjaldbökunum.
Ég legg til að þú náir þér í eintök af skjaldbökum þessum, rústir þeim og illkvittnislegur hlátur er valmöguleiki.
Nei nei - þú bast einfaldlega sjálfur um andlegu augun þín. Martraðir eru oftast sagðar vera af hinu góða. Þær tákna yfirleitt e.k. andlega hreinsun í gangi.
Kúamjólk er talin eitruð og hættuleg og engin mjólk í draumnum gæti verið ábending um að þú hafir gott vit á að forðast alls kyns andlega eitrandi hluti. Síðar í draumnum þá fjarlærgðir þú bindið sem þýðir að kannski ertu farinn að opna hjartað líka eins og jeg fór að gera......